jæææjaa
mamma er e-ð fram og til baka alltaf í öllu, hún s.s. sameinaði okkur á barnanet.is/ljonin, en svo tímdi hún ekki eftir kreppuna að borga aftur og þá hefur hún ekkert gert síðan þá og núna er svo langt um liðið síðan hún skrifaði sögur af okkur og henni finnst eiginlega bara ómögulegt ða gera þetta ekki áfram...það er svo gaman að lesa þetta svona eftir á finnst henni og eiginlega finnst henni nauðsynlegt að halda bók um hvern og einn því ekki hefur hún útbúið svona bók sem maður skrifar í heldur bara bloggað og þá er gaman fyrir okkur að geta lesið þetta seinna :o)
en s.s. fréttir af honum snæsa...hann er að verða hvorki meira né minna en 7 ára gamall á morgun, hugsa sér. Hann er búin að missa núnaa 7 tennur, 3 núna nýlega og er með göt þar, en hinar eru komnar upp, ef mamma man rétt. Hann er rosalega duglegur orðinn og ótrúlegaa sætur strákur og ofsalega ljúfur, svoldill gaur það verður að viðurkennast en hann er svo ljúfur við bræður sína. Núna liggur hann uppi í rúmi hjá múttu sinni og heldur utan um Sævar Þór litla. En snæsi er búin að vera í butu hjá pabba sínum í svoldið langan tíma núna, ansi mikið búin að vera hjá honum í sumar. En já, hann er einmitt búinn að eignast einn bróðirðinn enn, hjá pabba sínum í þetta sinn svo snæsi er orðinn ansi ríkur af systkinum.
Á mánudaginn byrjar svo skólinn og þetta fer að falla bara í rútínu hjá okkur. Snæsi æfði af kappi kungfu í fyrra og hann langar svakalega mikið að halda áfram....mamman er ekki viss um að það gangi upp þar sem tíminn byrjar klukkan hálf 5 en þá er hún upprekin við að sækja alla hjörðina...svo hann verður að prófa e-ð annað greyið sæti snúðurinn minn....
hvað get ég sagt ykkur fleirra af honum snæsa? Hann er bara reglulega elskulegur og sætur og góður og skemmtilegur og mamma ætlar að knúsa hann í kaf núna
kv. mamman

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home