Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

þriðjudagur, janúar 22, 2008

gleðiliegt ár




HÆ HÆ kæru vinir.....nú er ég sko farinn að skulda ykkur fréttir af mér, ég ætla að byrja að óska ykkur gleðilegs nýs árs, enda nú komið árið 2008. Þetta verður merkisár í mínu lífi því í haust verð ég 6 ára og byrja þar af leiðandi í skóla. Það er ýmislegt sem ég tengi við að byrja í skóla og er orðinn afskaplega spenntur.


Ég er orðinn líka svo duglegur að reikna og læra stafina, amma á Hellu gaf mér svo sniðugar bækur í jólagjöf og mamma og pabbi eru dugleg að æfa mig með þeim. Ég veit alveg hvað 4+6 eru og 6-5 og svona fleirra. Svo þekki ég marga stafi og er að æfa mig að segja hljóðin þeirra og svona. Mjög mjög duglegur, mamma er svo ánægð því það er afskaplega mikilvægt að ég haldist við efnið í skólanum og svona.


svo verður líka sögulegt að hætta í leikskólanum. ok...mamma mín er kannski svona ofsa erfið en henni leiðist svakalega þessar kerlingar á leikskólanum mínum. Gamlar kellingar sem nenna ekki að hlaupa á eftir svona orkuboltum eins og mér og væla undan því hvað ég sé erfiður og svona, mömmu finnst ég bara EKKERT erfiður! alla vega ekki neitt erfiðari en önnur börn, mömmu finnst að þessar kerlingar ættu bara að skammast sín fyrir að reyna að koma því inn í hausinn á foreldrum að það sé e-ð að börnum ef þau geta ekki alltaf setið kyrr og svona.......sorry..en mamma er bara orðin svo reið út í þessar kerlingar og pirruð að þurfa að sitja undir svona leiðindum og geta ekki látið í sér heyra af ótta við það að það komi niður á mér og þurfa að brosa fölsku brosi framan í kellinguna (þetta er nú helst bara ein, deildarstjórinn, sem er mesta naðra ... og dulbýr allt með sýnu falska brosi...arg! hver nennir að tala við svona yfirborðskennt og falskt fólk, meira að segja Snæbjörn sér í gegnum hana!)....


en jæja..nóg um það....það verða s.s. miklar og spennandi breytingar á þessu ári.


ég er afskalpega heppinn strákur líka, ég á svo marga góða að, bæði ömmur og afa á Hellu og í Reykjavík og frænkur og frænda, systkin og allt og allir eru svo góðir við mig!


hey já vitiði hvað? ég fékk svo mikið flott í jólagjöf, fékk t.d. hjól með gírum, psp tölvu, bækur og föt og bara ógeðslega mikið flott, ég bara átti ekki til orð yfir þessu öllu saman, takk fyrir mig!


svo er ég núna að safna dósum til að geta keypt stýrissleðann hans afa af honum. Hann fékk hann í afmælisgjöf um daginn og við hjálpuðumst að að setja hann saman og nú fæ ég að hafa hann í láni þangað til ég get keypt hann .... rosa spennandi!!


en jæja..bið að heilsa í bili.

yfir og út

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home