Myndasíða
Sæl nú!
Af mér er allt gott að frétta. Mamma á ekki til orð hvað ég er að stækka og þroskast þessa dagana. Mamma er svo stolt af þessu sæta unga sínum!
Ég er að æfa sund og það gengur afskaplega vel, enda mikill sundkappi frá unga aldri :O)
mamma verður að viðurkenna að hún hefur ekki tekið saman nógu mikið af gullmolum undanfarið, en það er sko ekki af því ég er hættur að vera fyndin :O) Ég er reyndar orðinn örlítið þroskaðri og því eru gullmolarnir orðnir það líka :O) t.d. um daginn þegar mamma var að kveðja mig og hún sagði við mig gangi þér vel í leikskólanum sæti minn, mundu að hlýða konunum þá svaraði ég "já og mamma gangi þér líka vel í vinnunni, mundu að setja punkt!".
HÉRNA KOMA 2 MOLAR SEM MAMMA Á:
S: "mamma, er betra að sitja þegar maður er að pissa?"
m: "nei nei, allir strákar standa þannig þú skalt standa líka bara"
s: "en mamma, af hverju situr þú alltaf?"
m: "af því mamma er stelpa og stelpur þurfa alltaf að sitja þegar þær pissa"
s: "já, eru þær ekki með svona pullu?"
Í SUNNUDAGASKÓLANUM ÞEGAR PRESTURINN VAR AÐ SEGJA SÖGU
S: SKO, JÉSÚ HANN ER PABBI GUÐS
presturinn: JA, AMK. ER HANN SONUR GUÐS.
En annars vildi mamma aðallega fá að segja ykkur frá myndasíðunni okkar sem við erum svakalega stolt af að vera loksins búin að búa til, þá þurfið þið ekki að fletta í bloggsíðunni ef ykkur langar skyndilega að sjá okkur sætu bræður (já og kannski fá mamma og pabbi að vera líka með)
yfir og út
Svalur
e.s. hérna koma myndasýnishorn





0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home