hjá pabba
Jæja jæja, nú er aldeilis langt síðan við settum inn fréttir af Snæbirni.....en hann er s.s. hjá honum pabba sínum í Garðinum.
Hann fór til hans 13.júlí, en þann 14. júlí 2007 gifti Valgeir og Sigrún sig í Fríkirkjunni í Reykjavík og Snæbjörn var að sjálfsögðu mættur til að taka þátt í þessum merkisdegi, reyndar voru Birna og Óskar líka. Snæbjörn var pínu oggu ponsu feiminn í kirkjunni þegar hann átti að labba inn kirkjugólfið ásamt Emilíu stjúpsystur sinni og Sigrúnu, þannig hann neitaði alfarið að fara með. Hann fékk að fylgjast með brúðkaupinu ofan af bekknum uppi og þorði svo að lokum að koma inn í kirkjuna og sitja í altariströppunum hjá Emilíu. Veislan var líka svaka flott, haldin á Iðnó við tjörnina. Innilega til hamingju, Sigrún og Valgeir.
Að öðru leyti er kannski erfitt að segja að svo stöddu máli þar sem prinsinn er ekki á staðnum.....við bíðum öll svaka spennt eftir að fá hann aftur til okkar, vonandi kíkir hann á okkur aðeins í heimsókn. Svo fer að líða að 5 ára afmælinu, hann er aldeilis orðinn stór.
en bið að heilsa í bili, þangað til Snæsi mætir á svæðið
kv. mamman

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home