Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

laugardagur, apríl 14, 2007

eins og maður er

hæ hó
ég er sko ekki heima hjá mér þessa stundina, er hjá honum pabba, en mamma vill samt blogga til að segja ykkur hvernig lifið og tilveran er hjá mér.....en það er bara allt gott að frétta hjá mér....ég er núna byrjaður að fara snemma í leikskólann og er bara sáttur með það, var reyndar e-ð að biðja mömmu um að sækja mig snemma núna um daginn, kannski er ég e-ð smá farinn að sakna þess að eiga nógan tíma með mömmu, alla vega saknar mamma þess ægilega mikið, það var svo nice að geta vaknað í rólegheitum og leikið sér upp í rúmi, mamma leyfði mér oft að fljúga eða við hjóluðum, eða mamma var mannætu blóm sem át mig (með löppunum sínum) og ég var boðin velkomin í hausasalinn (had to be there, I guess).....en við skemmtum okkur alltaf konunglega saman í rólegheita stundunum okkar....

mamma var rosa góð við mig á föstudaginn, því hún gaf mér svona aðeins fyrirfram sumargjöfina mína, ég fékk SVERÐ!! pælið í því! ég er búin að vera biðja mömmu um þetta alveg ógeðslega lengi og LOKSINS fékk ég svona flott sverð :O)

við fórum á Hellu um páskana, það var svakalega gaman, það var svona ratleikur til að finna páskaeggin, mamma bjó til svona teiknaðann ratleik fyrir mig, teiknaði dótakassann, hundabólið, sjónvarpið og e-ð fleirra, það var svakalega gaman og ég var rosaleg fljótur að finna eggið mitt...og enn fljótari að borða það!!

amma Magga var að lita hárið sitt og ég var svoldið hissa á þessu og spurði af hverju hún væri að þessu eiginlega (var með e-n skrýtin poka á hausnum), amma svaraði að hún vildi lita gráu hárin ..... mér fannst það greinlega ekki sniðugt því ég sagði við hana "maður á bara að vera eins og maður er"...... ég er svo skynsamur :O)

alla vega, mamma fer vonandi að finna myndavélina sína aftur svo hún geti tekið e-r myndi af okkur bræðrum og birt....en þangað til verðið þið bara að skoða gamlar myndir til að muna hvað ég er ofboðslega sætur :O)

kv. S.Valur

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home