hæ hæ kæru vinir
nú er aldeilis langt síðan við skrifuðum hingað inn...greinilega e-ð aðeins meira að gera hjá múttu minni..híhhh....en s.s. er allt gott að frétta hjá mér, lífið gengur auðvitað sinn vanagang, ég fer í leikskólann minn, fer svo að tuskast e-ð með mömmu eftir leikskóla, horfi á barnatímann, borða kvöldmatinn, bursta tennur, lesum bók og fer að sofa....eða svona í grófum dráttum er þetta dagskráin virka daga....aðra hvora helgi fer ég auðvitað alltaf til hans pabba, það finnst mér enn og aftur alveg æðislegt.....svo fæ ég reglulega að gista hjá ömmu og afa líka og aðrar helgar fer ég til ömmu og afa á Hellu, þannig ég er ótrúlega ánægður með lífið....
ég er mikið búin að stækka, mamma er alltaf forviða hvað ég er orðinn stór og duglegur, hjálpa mömmu eins og ég get....
sögur af strák
...við matarborðið á Hellu
s: ég ætla að búa hér í þessu húsi þegar ég verð stór, það er svo fallegt!
...á Hellu að horfa á silvia night
brynjar hafði á orði að þetta væri orðið frekar þreytt e-ð
s: finnst þér silvía ekki skemmtileg?
m: snæbirni finnst sko Silvía svo sæt...
s: neihh!! mér finnst hún falleg!
...snæbjörn er alltaf að spyrja út í hvernig á að segja þetta og hitt á ensku...hann er orðinn ótrúlega góður
p: for you?
...snæbjörn svaraði um hæl
s: no not for me!
....mamma var e-ð að flýta sér og dreif sig niður í bíl með snæsa í eftirdragi en snæbjörn er oft mjög þungur í taumi og kvartar sáran yfir því hvað hann sé þreyttur....eftir að reyna að reka á eftir honum fór mamma á undan honum í gegnum bílskýlishurðina
s: mamma!!! það á ekki að fara á undan börnunum sínum
s: ég ætla að eiga heima á Hellu þegar ég verð unglingur!
...snæbjörn að teikna mynd
s: mamma ég gerði bumbuna á þig
m: já rosa er ég fín
...nokkrum dögum síðar eftir spítalavist og uppskurð mömmu sinnar
s: mamma sjáðu, ég setti götin líka á þig...búin að teikna "göt" á bumbuna
...snæbjörn var veikur, hálsbólgu, hósta, hita og uppköst...eftir 10 daga veikindi ákváðum við að fara með hann til læknis
s: ég vill fara til læknis og láta hann bara taka geislana
..stutt seinna
s: ég vil fara til tannlæknis
....á leiðinni út
s: af hverju getur læknirinn ekki bara komið til okkar?
....læknirinn skoðaði hann og sagði að hann væri með flensu og ekkert í eyrunum
s: læknirinn vildi bara ekkert lækna mig!
s: Silvía nótt er falleg
m: já en hún er frekjudós
s: en hún er rosa fín, mér finnst það alla vega
amma: snæbjörn minn, ertu orðinn þreyttur í kálfunum
s: hahahaha þetta eru ekki kálfar amma, þetta eru lappir
kv. Snæbjörn Valur

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home