Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

laugardagur, nóvember 04, 2006

hvað er að frétta??

hæ hæ vinir mínir allir saman um heim og geim :O) af mér er allt súper fínt að frétta....þessa stundina er ég ný skriðinn upp í stóra bílinn hans afa á leiðinni norður á Akureyri með ömmu og afa, þar ætlum við að sjá Karíus og Baktus í leikhúsi Akureyrar...mikið var ég spenntur að fara af stað, ég tróð uppfullar allar töskur af allskonar dóti....ég hef svo gaman af því að pakka :O)

já og ég er bara kátur í leikskólanum að vanda, er ánægður með litla bróður minn náttl. og bara alla í kringum mig. Er enn þá í sundskólanum og það gengur bara svakalega vel, ég mæti þar strax eftir leikskóla þriðjudaga og fimmtudaga og á meðan fer mamma í bókasafnið og tekur e-r skemmtilegar bækur handa mér...

gullmolar
-- að horfa á shrek
s: mamma, af hverju baðstu ekki guð um að fá stelpu?
m: viltu að litli bróðir sé stelpa?
s: nei ég vil vera stelpa
m: nú af hverju?
s: því þá get ég verið drekinn í shrek því hann er stelpa


-- mamma að punta sig í bílnum
s: má ég líka pumpa mig?
m: viltu fá svona púður? en það er bara stelpur sem gera það
s: ég vil líka pússa mig mamma
-- hann var svaka flottur :O)


-- að búa til hús úr elshússtólunum og flísteppi
s: ég þarf að hafa skraut í húsinu mínu
-- og nær í fullt af dóti :O) hann hefur e-ð fylgst með múttu sinni .. hehe


s: mér er ekki illt í geislunum í hálsinum lengur
-- s.s. ekki lengur illt í kirtlunum


m: var gaman í leikskólanum í dag? hvað varstu að gera?
s: við vorum í mömmó, ég var hundurinn
m: ohh en gaman,
s: ísak var ljónið
m: hver var mamman?
s: það var engin mamma
--hmm..skrýtin mömmó

s:"þegar ég verð stór ætla ég að eiga konu og börn og þá ætla ég að búa hér"
m:"en konan þín? Á hún að búa hér líka?"
s:"nei, hún kemur bara í heimsókn"


bið að heilsa í bili
kv. Snæbjörn Valur

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home