vetur nálgast
hæbb...hvað segist þá? nú er aldeilis farið að styttast í að komi vetur hérna á Íslandi...við mamma erum orðin ægilega spennt að geta farið út og gert snjókall og farið að renna okkur á snjóþotu..jibbý jey!! að ég tali nú ekki um jólin..jiii hvað við hlökkum til....við verðum auðvitað saman öll fjölskyldan, ég , litli brói, mamma og óskar pabbi...rosa erum við spennt...getum sko ekki beðið eftir því að geta farið að skreyta hjá okkur...hmmm..hvað segiði megum við ekki skreyta bara í október??
en já..ég er ægilega hress og kátur...er búin að vera alveg marga marga daga hjá pabba og sigrúnu.....ég er svo ánægður hjá þeim að ég vill helst ekkert koma heim í hversdagsleikann heima hjá múttu....eðlilega ekki...en ég er samt mættur heim aftur og farinn í leikskólann...það er alveg ágætt...
en hérna koma nokkrir gullmolar frá mér sem mamma hefur safnað saman...
--sér osama binladen í sjónvarpinu
s: er þetta guð?
--hann er s.s. mikið að pæla í jesú, guð og þess háttar því við erum aftur farin að fara í kirkjuskólann á sunnudögum
-- erum með maríu meyjar icon upp á vegg hjá okkur
s: hver er þetta?
m: maría mey, mamma jesú
s: er hún vinkona þín?
m: nei hún er löngu dáin
s: af hverju ertu þá með mynd af henni?
--nokkrum dögum seinna
s: af hverju er mamma hans jesús dáin?
m: af því það er svo langt síðan hún var til
s: af hverju?
m: það er bara svo rosalega langt síðan
s: jáááá okey...var hún til þegar risaeðlurnar voru til
s: ég var uppi hjá guði þegar þú varst lítil (mamma)...ég spjallaði mikið við guð...við vorum svo miklir vinir....en svo sagði hann bara allt í einu að ég ætti að fara til ömmu og mömmu og afa og pabba...og ég sagði bara takk fyrir :O)
--að koma frá Oddakirkju
m: komu púkarnir með ömmu og afa frá Spáni?
s: já...en þeir voru eftir í kirkjunni..fóru inn í jesú myndina
m: nú?
s: já og svo hringir jesú bara í spiderman og hann tekur þá fasta og þá kemur batman og setur þá í fangelsi og ofurhetjunar skera þá svo í sundur
--jahérna hér...mikið er jesú heppinn að þekkja alla þessa kalla :O)
s: hef ég hit langömmu og langafa (afa megin)
m: nei þú varst svo lítill þú mannst ekkert eftir því
s: júhú
m: og hvernig líta þau út?
s: ummmm....eins og krækiber :O)
m:mannstu eftir frænku þinni sem við hittum ?
s: já hún var með hárið allt út í loftið
m: já..einmitt..hún er hárgreiðslukona
s: hahaha og hún gleymir að klippa sig
s: þegar litli bróðir verður 11 ára...þá verð ég orðinn 5 ára
-- mikið vex litli bróðir hratt :O)
--snæbjörn prumpaði ansi mikið uti á spáni
amma: af hverju prumpar þú svona mikið?
s: af því að mamma mín prumpar
--ég meina gengur þetta ekki í erfðir eins og annað??
--á spáni með ömmu og afa...við lögðum alltaf í sama stæðið en einu sinni var búið að taka stæðið okkar
afi: það er e-r manneskja búin að taka stæðið okkar
s: manneskja ? nei skepna...það er e-r skepna búin að taka stæðið okkar
--nefnum engin nöfn...en snæbjörn er duglegur að taka upp orðafar ákveðinna aðila (og það er ekki frá mömmu eða pabba)
--í bílnum með pabba og sigrúnu og e-ð var verið að skamma Emilíu (stjúpsystur snæbjörns)
s: Það þarf ekki að skamma mig, ég er svo fallegur :O)
thats all folks
yfir og út

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home