Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

miðvikudagur, október 18, 2006

Tómas Huginn

Jæja þá er búið að skíra bróa minn hann heitir Tómas Huginn :O) er það ekki fínt? við erum rosalega ánægð með það alla vega, reyndar finnst mér sjálfum asnó að hann heiti Tommi eins og Tommi frændi og hló bara þegar mamma sagði að hann héti Tommi...hehh...en það hlýtur að venjast hjá mér :O)

Ég er núna hjá pabba á kirkjubæjarklaustri og mamma saknar mín sárt, vantar allt fjör í bæjinn þegar ég er ekki heima en mamma er alveg viss um að mér finnst rosa gaman hjá pabba eins og alltaf.

það er ekki mikið að frétta annars hér á þessum bæ....lífið gengur bara sinn vanagang, mamma er alltaf að safna gullmolunum mínum saman og setur þá hérna inn þegar þeir hafa safnast nokkrir saman, bara erfitt að safna þeim saman þegar ég er ekki á staðnum :S

en ég bið að heilsa í bili
kv. Snæbjörn Valur

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home