Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

þriðjudagur, október 10, 2006

Krumpukr?tt

hæ hæ hæ hæ....hvað segist gott? allt gott að frétta hérna hjá mér...ég er núna sofandi reyndar, maður verður víst að gera það líka...en mútta og ég vorum að horfa á imbann og ég bara steinsofnaði....var greinilega orðinn svona svakalega þreyttur því ég sofna vanalega ALDREI fyrir framan sjónvarpið..

en s.s. já...mætti galvaskur í leikskólann í morgunn....mamma sótti mig svo og við fórum til ömmu sem var að koma úr aðgerð, ekkert alvarlegt sko...en alla vega vorum við að skoða hvernig hún hefði það...hún var auðvitað svaka hress...svo fór ég í sundskólann minn..geðveikt fjör og að lokum fórum við heim og fengum okkur súkkulaði-piparmyntuskyr eins og mamma mín fékk alltaf þegar hún var lítil..nammi namm !!

heyri í ykkur seinna með fleirri fréttir..td. nafnið á litla bróður sem fær nafn núna 14. október..

luv Snæbjörn Valur

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home