Krumpukr?tt
hæ allir saman
af mér er gott að frétta bara...ég er rosa ánægður með lífið..ég á svo yndislega lítinn bróðir og ég er ekkert smá ánægður með hann..ég kyssi hann mörgum sinnum á dag og strýk og knúsa...mamma hefur svona pínu áhyggjur þó stundum því ég vill vera svo góður en kannski átta mig ekki á því hve sterkur ég er :O)
ég er búin að fá alveg fullt af pökkum af því ég er orðinn stóri bróðir og vill fá að þakka kærlega fyrir mig
ég er á fullu í leikskólanum, ég fer á morgnana með Óskar pabba og svo kemur mamma upp úr hálf fjögur með litla bróa að sækja mig...þá fer ég út að leika eða í göngutúr með múttu...eldum svo mat...svo fer ég í bólið um 20...þannig er minn dagur :O)
gullmolar
--mamma að koma að sækja mig í leikskólann
s: hæ mamma...hvað keyptiru handa mér?
m: ha? keypti ég? ekki neitt
s: nú, af hverju ekki?
m: þú ert búin að fá svo mikið
s: mamma, skjótumst bara og kaupum eitt dót og förum svo heim..ok mamma?
--að skoða myndir af ljónum í bókinni við kvöldlesturinn
s: við erum ekki með svona tennur
m: nei við erum bara með mannatennur
s: nei..þú ert með kellingatennur og ég með strákatennur
s: kann litli bróðir að segja dada?
m: nei hann þarf að stækka svoldið meir fyrst
---þegar snæbjörn kemur svo heim úr leikskólanum sama dag
s: kann hann núna að segja dada?
s: sjáð'iði hvað þetta er stór kartafla....segiði vá!
s: mamma ég borðaði alveg svona marga diska af fisk í dag (og réttir upp þrjá putta) var ég ekki duglegur?
m: jú rosalega varstu duglegur
s: eigum við ekki að hafa fisk í matinn?
s: mamma, hver er eiginlega stjúpmamma þín?
s: mamma er ég ekki lifandi?
m: jú auðvitað
s: þú ert ekki alveg lifandi
m: nú hvað er ég þá?
s: jú ok, þú ert líka lifandi
m: hvað er í hausnum þínum?
s: hjarta!
(ný búin að útskýra fyrir honum hvernig líkaminn virkar)
that's all folks
knús Snæbjörn STÓRI BRÓÐIR

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home