kátur og hress
hæ hæ allir,
af mér er bara fínt að frétta. Er hjá pabba og Sigrúnu núna. Gisti hjá ömmu Þórey og afa Hafliða á fimmtudaginn og svo sótti pabbi mig á föstudaginn í leikskólann...mömmu finnst eins og hún hafi ekki séð mig svo lengi....svona er það að vera svona ósköp vinsæll..thíhí
annars bara gengur lífið sinn vanagang hjá okkur sko...mamma skutlar mér í leikskólann á morgnana..tökum okkur þó alltaf tíma og erum komin frekar seint...ég er ægilega duglegur að klæða mig á morgnana og mamma er svo ánægð hvað ég er að þroskast og stækka...
ég á einn rosa góðan vin, sem er frændi minn hann Róbert Snær og mér finnst alltaf svo gaman að leika við hann...þó svo að ég þurfi svona stundum að impra á því að ég sé stærri en hann....en maður er nú bara á þessum aldri sem það skiptir auðvitað miklu máli...
ég pæli ægilega mikið í því hver á afmæli á undan hverjum...finnst eiginlega hálf kjánalegt að litla barnið í bumbunni komi til með að eiga afmæli á undan mér..ég meina ég er STÓRI bróðir..þá hlýt ég að eiga afmæli á undan...annars finnst mér ekkert varhugavert við það að mamma eigi afmæli á eftir mér...híhí...
ég er alltaf að setja inn pöntun á afmælisgjöfum....alltaf ef ég er að biðja um e-ð þá segir mamma að ég gæti kannski fengið þetta í afmælisgjöf þannig núna bið ég bara alltaf um þetta og hitt í afmælisgjöf....er komin alveg fram að 9 ára afmælinu varðandi hvað ég ætla að fá...t.d. ætla ég að fá risaeðlu, grænt mótorhjól, íþróttagalla, íþróttaálfsbol og fleirra og fleirra...sjáum til hvað af þessu rætist...
ohh jæja..mamma ætlar að láta þetta duga í bili..e-n veginn skrifar hún oft þegar ég er ekki heima..kannski af því þá saknar hún mín svo mikið og finnst þá gaman að rifja upp sögurnar af mér og skoða myndirnar af mér....
hafið það sem allra best,
knús Svalur STÓRI bróðir

að veiða :O)

ooojjj...ormur

í ferðalagi

ég...rosa smiley family

og Óskar pabbi

Mamma líka að smile-a

ad bora med afmælisgjöfinni hans Óskars pabba...rosalega gaman

Snæbjörn að leika litla barn!

hihi...svo gaman hja okkur

afmælið hans Óskars pabba

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home