Krumpukr?tt
hæ hæ
snæbjörn er nýlega vaknaður og er að borða morgunmatinn. kornflex og mjólk. Hann ætlar að fá að fara í tölvuna þegar mamma er búin að skrifa á síðuna hans. honum finnst svo gaman að leika sér í tölvuleikjunum, hann er að æfa sig svo mikið á tölvuna. Hann getur sjálfur leikið í leiknum og svo notað músina til að kveikja aftur á leiknum...hann er svo duglegur þessi sæta mús.
Snæbjörn hjálpaði óskar pabba í gær að setja saman kommóðuna fyrir litla systkinið sitt. Hann var svo rosalega duglegur að við áttum bara ekki orð, hann fékk alvöru fullorðins hamar og setti alla tappana í skúffurnar alveg fullkomlega rétt.
Snæbjörn segir frá:
Óskar pabbi var að hjálpa snæbirni að gera skúffurnar fyrir litla barna systkinið sitt. Óskar pabbi var að byggja rúmið mitt um daginn og Óskar pabbi var að byggja litla barnarúm í morgun. Mamma var að ganga frá dótinu og þá var hún bara ekkert mjög hrædd. Óskar pabbi var að fara að sofa og hann fór að gefa mér límmiða og ég fékk bílalímmiða af því ég var svo duglegur að smíða.
núna er ég alveg að fara að byrja í tölvunni.
kveðja Snæbjörn Valur

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home