Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

þriðjudagur, júlí 04, 2006

hæ hó

hæ hæ ...

allt gott að frétta af mér...er bara ofsa kátur og hress strákur að vanda...mamma er alltaf svo spennt að hitta mig....bíður eftir því að ég komi hoppandi upp í rúm á morgnana og gefi henni fallega brosið mitt og knúsi hana...ég er algjör gleðigjafi...í morgun var ég reyndar hryllilega syfjaður og mamma þurfti að hafa mikið fyrir því að vekja mig..en um leið og ég opnaði augun brosti ég skæru brosi til múttu....svo var ég geðveikt duglegur að klæða mig..mamma er alltaf að æfa mig svo ég verði nú orðinn duglegur stór strákur þegar litla barnið fæðist...maður verður nú að vera góð fyrirmynd :O)

ég fór í útilegu með múttu og Óskar pabba síðustu helgi...svo ætla ég að fara með hafliða og þórey ömmu í útilegu í kvöld og svo fer ég um helgina til pabba og sigrúnar...það er sko nóg að gera hjá mér alltaf....

mamma hefur tekið saman nokkra svona gullmola eins og hún kallar það...e-ð sem ég segi eða geri sem mömmu finnst svo gaman að....ég er svo mikill snúlli :O)

gullmolar
s: "af hverju er langamma heiða dáin?"
m: "af því þegar fólk er gamalt deyr það stundum"
s: "þegar ég verð fullorðinn ætla ég alltaf að fara til læknis svo ég verði aldrei gamall"

s: "mamma, er guð með svaka stóran munn?"
m: "af hverju?"
s: "af því þú segir alltaf að amma og englarnir séu uppi í guði"
m: "neihh, kjáninn minn...uppi hjá guði"

snæbjörn fann sprite flösku í bílnum hans afa og drakk af....þvílíkur svipur...þetta var víst brennivínið hans afa...
s:"mamma sprite-ið hans afa var bara eitrað"

snæbjörn tekur fram ferðatöskuna sína, pakkar í hana e-u dóti
s: "mamma, ég er að fara til majorka á morgun, það er svo langt síðan ég var í útlöndum"
m: "en það eru nú bara rétt 2 mánuðir síðan við vorum í útlöndum"
s: "já, það er svo langt síðan"
--meðan flest börn láta sér vel nægja að fara svona ca. annað hvert ár
--nokkrum dögum síðar spurði leikskólakonan mömmu hvenær snæbjörn færi til Majorka með ömmu og afa....maður lætur sko ekki segjast!

--reglulega heyrist
s: "ég er sko miklu sterkari en þú !"

s: "mamma nenniru að halda á þessu ég ætla að fara svo hratt"
-- hleypur af stað
s: "mamma, var ég ekki alveg eins og kappastursbíllinn?"
-- bíll ekur framhjá
s: "sko, hann náði mér ekki einu sinni því ég fór svo hratt!"

--snæbjörn fór í rennibrautina í sundlauginni í Laugarlandi, mamma sá að hann rann bara ekkert í renni brautinni þannig hún sagði honum að hann yrði að draga bara buxurnar niður rassinn eða renna á bakinu....snæbjörn samviskusamlega gerði það...en kom niður á maganum og flassaði alla í sundi :O)
--mamma þurfti svo að passa sig að hisja upp um snæsa áður en hann fór upp úr því annars bara labbaði hann með buxurnar niður fyrir rass...
--við erum sko ekki feimin...

--í sturtu með Óskar pabba
s: "má ég sjá rassinn þinn, er hann nokkuð rauður, því þá þarf að setja á hann krem?"
--mamma passar nefninlega að setja krem á rassinn hans snæsa ef hann verður rauður...kemur stundum fyrir
--Óskar pabbi var nú samt ekki alveg á því að vera e-ð glenna framan í hann rassinn..híhí...en snæsi gafst ekki upp
s: "en hann er svo sætur, má ég sjá!"


heyrumst fljótlega
snæsi

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home