Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

föstudagur, júní 09, 2006

Krumpukr?tt

hæ allihopa

þórey amma á afmæli í dag...til hamingju amma mín!! ég fékk að gista hjá henni síðustu nótt...þegar ég vaknaði í morgun þá neitaði ég að segja til hamingju með afmælið við hana fyrr en ég fengi köku! ... maður verður nú að fá afmælistertu!

en loksins skrifa ég e-ð smá aftur...mamma e-ð búin að vera léleg að skrifa...en s.s. það er bara allt fínt að frétta hjá mér..ég er byrjaður á fullu í hálsakoti og er rosaleg ánægður...

ég var að kveðja róbert snæ frænda um daginn því hann var að fara til útlanda og þá rukumst við saman og ég braut framtönn...sem betur fer er þetta barnatönn þannig að ég verð að bíða til 6-7 ára ca til að fá nýja flotta...en alla vega þá eru krakkarnir í leikskólanum sem eru að fara í skóla öll að missa tennur þannig ég sagði ægilega stoltur við mömmu að núna væri ég líka búin að missa tönn :O) þannig ég var alls ekki ósáttur við þetta óhapp....ég fór samt til tannsa til að láta að loka fyrir niður í tannbein því mig verkjaði alltaf í tönnina þegar mamma var að tannbursta mig og ég var alveg ægilega duglegur...fékk svona blátt töfraljós á tönnina..mamma kjáni hélt að ég gæti kannski flogið úr því ég fengi svona töfra tönn...en það var ekki alveg að gera sig...en ég fékk þó alla vega verðlaun

við búum núna í þórðarsveig með kristínu systur hans óskars..mér finnst það ægilega gaman...við kristín erum bara góðir vinir og núna þegar hún fór til útlanda í svoldin tíma þá spyr ég reglulega hvort hún sé ekki að fara að koma sér heim....

svo bara er ekkert annað að gerast hjá mér en að ég er að stækka rosalega mikið og þroskast og allt það....mömmu finnst ég alltaf jafn fyndin og þreytist aldrei við að segja óskari sögur af mér þegar hann kemur heim á kvöldin og þau hlæja ægilega mikið af uppátækjunum í mér.....

ég fer svo alltaf aðra hvora helgi til pabba og þar hitti ég stjúpmömmu sigrúnu og emilíu stjúp systur mína og svo magndís hugrún litlu systur...ég er ægilega stoltur af því að vera stóri bróðir...mér finnst svo skrýtið að það eigi ekki allir stúpmömmu og stjúppabba og systir og svona...spyr mömmu oft að því hvar hennar systir eða stjúpmamma séu....

þannig ég hef það bara rosalega fínt og er ánægður að vera svona ríkur að eiga ömmu sem á fullt af videospólum..en ég fæ oft að horfa á video hjá birnu ömmu....

en næst á dagskrá er að fara í útilegu með múttu og óskar á flotta bílnum hans afa..það verður sko fjör....sjáum hvað drífur á daga okkar þar...

bið að heilsa í bili
kv. snæsi

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home