Krumpukr?tt
hæ hæ allir saman
allt gott að frétta af mér...eins og svona oftast er ég ægilega kátur og skemmtilegur strákur :O) Ég fór með mömmu, Óskar, afa og ömmu til Marmaris í Tyrklandi í viku og hafði það ægilega gott. Það var fullt af krökkum að leika við úti við sundlaugina...en reyndar var sundlaugin svo KÖLD að nánast enginn fór út í NEMA ég...víkingurinn frá Íslandi !! Ég kom svo alltaf reglulega til mömmu eða ömmu og lét hlýja mér...alveg hríðskjálfandi á beinunum.....ég fékk meira að segja sundskýlufar
núna er ég komin aftur til Svíþjóðar og er í leikskólanum mínum aftur núna, síðasta vikan, fékk að koma aftur því allir voru búnir að sakna mín svo mikið...ég tralla með krökkunum daginn út og daginn inn..mikið er það gaman....hitta alla vini mína aftur...en því miður bara í stuttan tíma því við klárum endanlega allt saman hérna í sverige og fljúgum heim á föstudaginn næsta...
ég byrja svo í leikskóla heima 1.mái. ÉG fer á sama leikskóla og Róbert Snær frændi, leikskólinn heitir Hálsakot (minnir mig) og ég er búin að fara að skoða og leist bara vel á...mamma er ægilega spennt að ég komist aftur í svona rútínu og geti fengið smá stabilitet í lífið mitt aftur...ekki það að ég kvarti e-ð....
svo eignast ég lítið systkini í júlí...það eru ekki allir svona heppnir eins og ég að eignast tvö systkini á sama árinu...er búin að eignast eina systir en svo er mamma með bumbubúa og ég er búin að panta bróðir..svona af því að ég er búin að eignast systir..mamma er nú samt alltaf að reyna að útskýra fyrir mér að við getum ekki ráðið þessu og verðum bara að taka því hvort sem það er stelpa eða strákur.
en sko ég bið alltaf um tarsan...eða fílinn....ekki jane! þannig við sjáum hvort mér verði að ósk minni
bið að heilsa í bili
kv. Snæbjörn

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home