Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

laugardagur, febrúar 25, 2006

Ísand, gamla góða Ísland

Hæ hó,
þá erum við mæðgin mætt á klakann aftur...ferðin gekk vel og við náðum að koma með ansi mikinn farangur með okkur, sem var bara ansi gott, þó svo að hafi verið frekar erfitt að burðast með þetta með okkur. En sem betur fer skutlaði vinur okkar okkur á flugvöllinn þannig við þurftum ekki að fara með lestinni...

en við erum búin að njóta þess að vera heima á Íslandi, fórum náttl. í almennilegt sund, fengum okkur pylsur og nutum veðurblíðunnar, en það er talsvert betra veður hér en í Lundi, það er alla vega talsvert hlýrra hérna...

en alla vega biðjum að heilsa í bili...vonandi hafa allir það súper fínt, sjáumst
Birna og Snæsi

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home