hæbbs
hæ hæ kæru vinir :O)
Af mér er allt gott að frétta. Er farin að lúlla núna. Mamma var að tala við ömmu í símann, ég reyndar líka, tala við þau á skype. En við erum annars bráðum að fara að koma heim til Íslands og við erum aldeilis orðin spennt...jibbý !
Þegar mamma kom og sótti mig í leiksólann í dag var ég kóngur! sko ég var í rauðu vesti með gylltum ísaumi og hatt í stíl, rosalega flottur! Svo brostu allar konurnar út af eyrum þegar þær sögðu múttu frá því hvað ég var að bardúsa...ohh ég er svo mikið krútt!!
ég fór í sund í gær með múttu...mikið var það gaman...svo fórum við í gufu og ég fór með barnahandklæði sem ég setti á hausinn og sagðist vera batman, sko...batman er aðal núna, spiderman er úti !! bara svona svo þið vitið!!
ég er því miður svoldið erfiður að borða matinn minn og mamma veit hreinlega ekki hvað hún á að gera til að fá mig til að borða...það er sama hvað hún reynir, tala mig til, gefa mér verðlaun, vera reið og skipa mér að borða...ég bara vill ekki borða....ég er svoldið mikið þrjóskur.
en jæja..nú ætlar mamma að fara að hvíla sig fljótlega...kannski aðeins að horfa á e-r mynd áður...biðjum að heilsa öllum
knús og kossar,
Snæbjörn

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home