hæ hæ kæru vinir...
það er búið að vera rosalega mikið skemmtilegt að gerast hjá okkur mömmu í dag. Fyrst fór ég í íþróttaskóla í dag, það var sko rosalega mikið fjör. Ég átti reyndar erfitt með að vakna og var svoldið lengi í gang í íþróttaskólanum ... mamma var næstum bara búin að labba með mig út þar sem ég neitað alfarið að gera eins og hinir og vildi bara fljúga um stóra salinn. Ég fór ásamt vinkonu minni henni Hrefnu Lily. En svo kom dótið og þá var sko vægast sagt mikið fjör ! ég prófaði alls kyns skemmtilegt dót, hoppaði meira að segja í gegnum hring á dýnu og bara alls kyns skemmtilegt...ég var reyndar svoldið lofthræddur og þori ekki að fara í neitt sem þýddi meiri hæð en mittishæð á mömmu. En það er bara allt í lagi.
En svo fórum við í kirkjuskólann og fengum að sjá 2 litlar stelpur vera skírðar, sungum skemmtileg lög og fengum svo kökur eftir á. ROSA NICE. Svo eftir kökurnar vorum við full af orku allir krakkarnir þannig við hlupum um gangana og lékum okkur aðeins saman..mjög mikið fjör !!
Síðan fórum við og fengum okkur Makk Dónalds að borða, þarf fengum við enn þá meiri útrás í að leika okkur í skrýtinni rennibraut og það var frábært !
en sko gamanið er ekki búið...eftir það fórum við heim og fórum út með nýju flottu snjóþotuna mína og fórum að renna okkur ásamt Hrefnu Lily og að róla og bakarísleik og enduðum útiveruna á því að búa til snjókalla, svona fötusnjókalla, eins og mamma kallar það. Þá tekur hún skúringarfötuna sína og mokar í hana snjó og setur vatn yfir þar sem snjórinn er svo laus í sér og þjappar saman þangað til að þessi fíni snjókall biritst :o) bjuggum til lítin strákasnjókall og mömmusnjókall...mamma var því miður orðin of þreytt til að gera pabbasnjókall þannig við sögðum bara að hann hafi farið í bíltúr..hehh..
en eftir það höfum við bara verið að taka til heima og ég að horfa á Bubba Byggir....svo reyndar skruppum við til að sækja myndavélina hennar mömmu sem hún gleymdi í kirkjuskólanum því ég var svoldið erfiður að fara heim ... hehh... en sko..ég heimtaði að fara á bílnum þrátt fyrir að það sé bara 5 mín gangur þangað...ég er nefninlega svo hræddur við kallinn í tunglinu þessa dagana....mamma veit eiginlega ekki alveg af hverju ég tók upp á því en ég þori ekki út eftir að það er komið myrkur og hef miklar áhyggjur að hann nái að sjá í gegnum litla rifu á gardínunum.....ég er nú meiri kallinn....
en mamma setti inn myndir frá þessum skemmtilega degi...já og líka frá því þegar ég heimtaði að fá að vera stelpa og mamma puntaði mig og setti í mig tagl og eyrnarlokka og hálsmen og svona...hehh.....ég tek mig bara vel út sem stelpa..finnst ykkur ekki ?? í Bubba Byggir kjól og svonna...híhíhíhíhi
hey já .... ég gleymdi líka alveg að segja ykkur frá því að ég er orðinn stóri bróðir ég s.s. eignaðist systir núna 31.janúar. Ég er ekki búin að fá að sjá hana enn þá...en vonandi fer pabbi að senda mér myndi af henni fljótt svo ég fari nú kannski að fatta þetta....þegar mamma sagði mér það þá skildi ég ekkert í því að við skildum ekki bara fá hana afhenta heim til okkar...hvað hún væri eiginlega að gera enn þá hjá pabba og Sigrúnu...hehh....en eftir útskýringar hjá mömmu skildi ég að barnið yrði að koma úr mallanum á mömmu til að við fengjum að hafa það hjá okkur og pantaði s.s. í skyndi bróðir...ef þú vildir vera svo væn mútta mín...hhíhíhíhí...
en alla vega..bið að heilsa í bili...hafið það sem allra best...knús og kossar...Snæbjörn Valur
e.s. SJÁ MYNDIR NEÐAR :O)

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home