gullið litla :o)
Hæ hæ kæru vinir,
ég er í leikskólanum mínum, mamma skildi mig eftir úti að leika með vinum mínum....ohh það er svo gaman að vera úti að leika núna því það er svo mikið af pollum til að bardúsa í....geðveikt gaman
mamma er búin að segja leikskólakonunum frá því að ég komi líklega ekkert aftur til Svíþjóðar, þær urðu ægilega sorgmæddar og svo eru þær búnar að vera að segja börnunum frá því til að undirbúa þau og í gær voru þau ægilega sorgmædd og voru öll að spyrja mömmu af hverju ég væri að fara og hvort ég kæmi bara EKKERT aftur..mamma fékk alveg sting í mallann :S en ég sjálfur er ægilega spenntur að koma heim, auðvitað mun ég sakna allra ægilega mikið hérna, en ég er mjög spenntur að hitta alla vini mína á Íslandi :o)
mamma safnar alltaf e-u svona sem ég segi...svona e-ð sem hún kallar gullmolar...svona svo hún man eftir öllu því sæta og fyndna sem ég segi við hana...hún ætlar að skella nokkrum inn:
--Þegar við fórum að sækja Óskar af flugvellinum og vorum búin að klæða okkur í fínni fötin okkar
Óskar: "rosa ertu fínn Snæbjörn, varstu að klæða þig svona fyrir mig?"
Snæbjörn: "neihh..ég var að klæða mig fyrir mig"
Snæbjörn talar svoldið mikið..hann talar daginn út og daginn inn og mamma getur stundum ekki fengið stundar frið..híhí
mamma: "Snæbjörn þú talar svoldið mikið"
Snæbjörn: "mamma, vilt þú ekki svona mikið talandi strák?"
mamma: "jú auðvitað engillinn minn"
Snæbjörn: "ég vil líka svona mikið talandi mömmu :o)"
að skoða mynd af sér úti að leika og flassið lýsti upp endurskinsmerkið á húfinni
Snæbjörn: "mamma ég á svona ljósa-húfu?"
--nokkrum dögum seinna
Snæbjörn: "mamma, af hverju kemur ekki ljós á ljósa-húfuna?"
--sænskan
Snæbjörn: "Mamma, venta lite"
Snæbjörn: "mamma, jag er törstig, það er sko drekka á sænsku"
Snæbjörn: "mamma, titta!"
-við leikskólakonuna
Snæbjörn: "jag er i batman bol, der er en bilen"
--smá pælingar
Snæbjörn: "mamma..er nokkuð tungl í tunglum?"
Snæbjörn: "mamma, hvað borða nasalingar?"
-- að horfa á herbie með múttu
Snæbjörn:"hvar er auga-bíllinn?"
--svefntími
Snæbjörn: "mamma, ert þú búin að sofa í þínu rúmi? ég get ekki sofnaði í mínu, má ég sofna bara smástund í þínu, please?"
Snæbjörn: "mamma,viltu lúlla smá í mínu rúmi?"
kveðja Snæbjörn,
sjáumst eftir bara 3 daga á Íslandi,
jibbý !

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home