hæ hæ
af mér er enn og aftur gott að frétta. Ég mætti frekar seint í leikskólann í dag, ekki fyrr en rúmlega 11, en við mamma vorum bara að dunda okkur hérna heima, rosa nice. Úti er alveg rosalega gott veður, sól og blíða og snjór yfir öllu, alveg ekta vetrar veður. Við mamma förum vonandi e-ð út að leika um helgina.
Ummmm...hvað er meira að frétta af mér, ég er alveg bráðum að fara að verða stóri bróðir, litla systkinið mitt verður tekið með keisara bara eftir helgina, þannig þetta er svaka spennó !
Við mamma ætlum að kíkja enn og aftur á klakann í smá heimsókn, okkur finnst rosalega gaman að koma og sjá ykkur öll og það er svo lítið mál að fljúga á milli. Við erum að spá í að koma heim 24. febrúar, en við vitum ekki alveg hvenær við ætlum svo að fara heim til baka, kannski viku seinna eða svo.
alla vega bara allt gott að frétta hérna hjá okkur. Vona að það sé það sama hjá ykkur líka :o)
gullmolar
Mamma: "Snæbjörn af hverju ertu á typpaling?"
Snæbjörn: "Það er allt blautt, ég pissaði í rúmið"
Mamma: "kjánalingur, pissaðiru í rúmið"
Snæbjörn: "það var ekki hausinn, það var typpið, skammastu þín typpi!"
Snæbjörn: "mamma, ég er svangur, má ég fá brauð....og kakó-út-um-allt"(s.s. kakómalt)
mamma: "hver á þig?"
Snæbjörn: "þú!"
mamma: "í alvöru á ég þig, t.d. þessar tær?"
Snæbjörn: "já, þú átt allt þetta"
Snæbjörn: "mamma, mig hefur alltaf, lengi langað í systkini"
Mamma: "já ok, á mamma þá að fá barn í mallann?"
Snæbjörn: "nei nei, þú ert mamma mín, bara Sigrún fá barn í mallann"
Bjarney: "rosa er bumban þín stór, Snæbjörn, ertu með barn í bumbunni?"
Snæbjörn: "já, ég er með eitt kíló af barni"
Snæbjörn: "ég setti á tásu með tásunni"-- s.s. setti á pásu á videoinu með tánnum
Snæbjörn: "mamma við verðum bara að smíða vængi fyrir mótorhjólið hans afa svo að hann komist í Svíþjóðina á því"
Snæbjörn: "mamma, þú ert min kompis"
Snæbjörn: "mamma, ég er lessen, það segja konurnar í leikskólanum alltaf."
Snæbjörn: "mamma þekkir þú Valgeir pabba?"
Snæbjörn: "mamma, þegar þú varst í bumbunni á ömmu, hvar var ég þá?"
mamma: "þá varst þú ekki til"
Snæbjörn: "jú, þá var ég bara hjá ömmu"
mamma: "Snæbjörn, hvernig komst þú þá í bumbuna á mömmu?"
Snæbjörn: "ég bara bankaði á hurðina og fór inn"
mamma: "og hvar er hurðin?"
Snæbjörn: "þarna" (og bendir á naflann)

1 Athugasemdir:
þú ert mesti og besti sætilíus í heiminum :))
Skrifa ummæli
<< Home