Er komin aftur til Lundar
HÆ hæ allir saman
Það er nú komið langt síðan við skrifuðum. Við höfum verið tölvulaus í langan tíma og núna erum við Internetlaus heima hjá okkur...en þetta fer allt vonandi að lagast fljótlega.
Annars er allt fínt að frétta. Ég átti alveg yndisleg jól heima hjá mér á Íslandi...ég var mikið með pabba mínum og svo náttl. hitti ég fullt fullt af fólki, ættingjum og vinum. Það var alveg rosalega gaman...ég er svo heppinn að eiga marga góða að. Mér þykir rosalega vænt um ykkur öll og sakna ykkar mikið nú þegar. Ég segi reglulega við mömmu að við skulum ekki vera neitt rosalega lengi í Svíþjóðinni heldur fara heim fljótlega til Íslands aftur.
Ég fékk rosalega mikið af dóti í jólagjöf...vá ég bara var alveg að gefast upp á að opna pakkana...líka vildi ég alltaf fá að leika mér með dótið sem kom úr pakkanum. En ég fékk að vera "jólasveinninn" þetta árið..valdi pakkana undir trénu og mamma las á og ég rétti viðkomandi pakkann. rosalega gaman.
Ég var reyndar orðinn rosalega þreyttur á jólunum að hitta allt þetta fólk. Mamma sárvorkenndi mér bara...auðvitað vildu allir vita hvernig væri í Svíþjóð og hvort ég kynni e-ð á sænsku en ég varð bara feimin og inn í mér við alla þessa athygli.
Pabbi var rosalega góður og skemmtilegur auðvitað...og ég var ægilega ánægður að hitta hann. Sigrún, kærasta hans er núna alveg að fara að eignast barnið í bumbunni...ég er s.s. bráðum að fara að verða stóri bróðir og ég hlakka sko mikið til. Mér fannst nú samt nóg um þegar mamma sagði mér að hún væri enn með barnið í bumbunni og trúði henni ekki fyrr en ég sá Sigrúnu með bumbuna. En þetta verður voða spennó ég læt ykkur vita um leið og ég veit hvort ég fæ lítin bróðir eða litla systur.
Það er líka reyndar rosaleg gott að vera aftur kominn heim til Svíþjóðar. Ég er SVO ánægður í leikskólanum mínum og fer alltaf hoppandi kátur þangað. Mikið er það gaman...ég á svo marga góða vini þar.
Það er mikill snjór í Lundi núna, svona miðað við Lund. Það er alla vega svona 10 cm fönn yfir öllu. Ég var nú samt ekkert ánægður með það því þá gat ég ekki hjólað í leikskólann eins og ég geri ALLTAF ! ég set svo hjólið í miðjuna á einni hjólagrind þar sem vanalega eru engin hjól (er einn af fáum sem er svona ruglaður að hjóla í leikskólann á veturnar) og ég segi að hjólið mitt sé þá með vængi og sé flugvél.
Ég fékk kubba gefins frá múttu og Óskari þegar ég kom til Svíþjóðar og það er sko mikið uppáhald að kubba !! ég bað um kubba kubba ! í leikskólanum og konurnar skildu mig ekki, loksins þýddu íslensku stelpurnar sem eru á minni deild fyrir þær að ég vildi "lego" og nú er ég alsæll að kubba í leikskólanum mínum líka :o)
en jæja..ég læt þetta duga af mér í bili...mamma setur inn myndir um leið og hún fær net heima hjá okkur...við lofum...
knús í krús
Svalur

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home