Krumpukrutt
hæ hó,
allt fínt að frétta hér!! er bara í leikskólanum mínum og hef alltaf jafn gaman af því....og er líka alltaf jafn frábærlega kátur strákur !! við mamma syngjum og tröllum frá því við vöknum, núna er uppáhaldið mitt
Upp á grænum, grænum,
himinháum hól
sá ég hérahjónin ganga.
Hann með trommu,
bomm, bomm, bomm
borommbommbomm
Hún með fiðlu sér við vanga.
Þá læddist að þeim ljótur byssukarl
sem miðaði í hvelli.
En hann hitti bara trommuna sem small
og þau hlupu og héldu velli.
hér koma nokkrar pælingar sem mamma hefur safnað:
Snæbjörn: "erum við búin að selja bruninn?"
Mamma: "já við seldum Andrésbrunn"
Snæbjörn: "já það er eins og brunabíll :)"
Snæbjörn: "ég er stóri bróðir"
Mamma: "já er það, hver er bróðir þinn?"
Snæbjörn: "Brynjar, en hann á ekki heima í Svíþjóðinni, hann á heima á Hellu"
í bíltúr
Mamma: "sjáðu Svíþjóð"
Snæbjörn: "hvar ?"
Mamma: "alls staðar hérna"
Snæbjörn: "er þetta svíþjóðin okkar? rosalega er svíþjóð löng"
Snæbjörn: "hvar á Thelma og Bjarney heima?"
Mamma: "á íslandi"
Snæbjörn: "hjá pabba mínum??"
Mamma: "hvað vill afi fá í jólagjöf?"
Snæbjörn: "hann vill fá mat í jólagjöf, mamma"
Snæbjörn: "pabbi minn er gamall og með feita bumbu"
Mamma: "já er það, eins og pabbi minn?"
Snæbjörn: "nei, pabbi minn er ekkert feitur"
Snæbjörn: "mamma, fer maturinn ekki í lappirnar líka?"
Snæbjörn: "vá mamma, sjáðu hvað typpið er búið að stækka"
Mamma: "ha er typpið búið að stækka?"
Snæbjörn: "já, það er búið að vera svo duglegt að borða."
Snæbjörn: "mamma, drekkur typpið piss?"
Mamma: "nei, sko þegar þú drekkur e-ð þá ferð það í magann, og hérna niður og út um typpið"
Snæbjörn: "líka djús?"
...eftir nokkra klukkutíma
Snæbjörn: "mamma, ég þarf að pissa, djúsinn er að koma"
Snæbjörn: "þegar hjólið mitt stækkar, þá ætlar það að hafa svona fána"
thats all folks

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home