Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

miðvikudagur, nóvember 02, 2005

svar við klukki

Hún vinkona mín Þórný Arna sem er 12 dögum eldri en ég klukkaði mig...þannig hér koma 5 staðreyndir um mig:

1. ég ELSKA að hlusta á dýrin í hálsaskógi og kann það næstum því orðið utan af

2. ég vill fá að kúka í einrúmi og rek alltaf mömmu eða leikskólakonurnar eða hvern sem er með mér út af klósettinu á meðan...ekker annað en sjálfsögð mannréttindi !!

3. ég hjóla alltaf í leikskólann og finnst ég svakalega duglegur að geta það....tek ekki annað í mál á hverjum morgni en að fá að hjóla !!! sama hvernig viðrar...

4. Ég er rosalega kátur og heillandi strákur...til að heilla fólk nota ég auðvitað mismunandi aðferðir eftir því hver á í hlut....var t.d. fljótur að heilla konurnar á Svíþjóðar leikskólanum upp úr skónum...

5. ég elska mótorhjól, bíla, byssur, hættuleg dýr sérstaklega ljón og ég leggst á fjóra fætur og urra á alla í kringum mig...enda er ég í ljónsmerkinu !


svei mér þá ... ég bara veit ekki hvern ég á að klukka...bíð bara með það :o)

yfir og út

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home