Sögur af mér
ég vaknaði einn morguninn snemma, mamma var búin að læra fram eftir nóttu og átti svoldið erfitt með að fara á fætur
það var líka allt í lagi því ég er mjög upptekin af því að hlusta á kardimommubæjinn
Þegar mamma svo loksins fór á fætur þá brá henni aldeilis í brún, þá var ég nakin, búin að krota mig allan út, fætur rauðar, hendur grænar og nota bene typpalingurinn var blár
mér fannst það miklu fallegra sko :)
Snæbjörn: "mamma, áttu enga fjölskyldu?"
Mamma: "jú, þig"
Snæbjörn: "bara mig? "
-- ægilega áhyggjufullur að mamma sín eigi engan að
mamma kemur inn í herbergið mitt
mamma: "af hverju ertu á typpaling?"
Snæbjörn: "buxurnar er blautar :("
mamma: "pissaðiru í buxurnar?"
Snæbjörn: "nei nei, ég pissaði í fötuna mína"
--og viti menn...hann hafði actually pissaði í fötuna sína inn í herbergi sínu
mamma: " það má ekki pissa í fötuna, þú verður að pissa í klósettið"
Snæbjörn: "nei, ég ætla ekki að pissa í klósettið!!"
mamma: "þú verður þá að fá bleyju bara"
1-0 (fyrir mömmu)
Snæbjörn: "já ok, ég skal fá bleyju"
1-1
mamma átti þó enga bleyju og tók upp dömubindi og veifaði því hótandi í áttina að mér...
mamma: "þú færð þá bara svona fullorðinsbleyju"
2-1
snæbjörn"...fullorðinsbleyja !! vá ! ok."
2-2
úff....þarna sneri Snæbjörn á mömmu.....mamma setti á mig dömubindið...og leyfði mér að prófa...en ég virtist bara ægilega sáttur.....
mamma: "er þetta ekki rosalega vont?"
3-2
Snæbjörn: "nei nei" ... og skottaðist aftur inn í herbergi
3-3
mamma varð að reyna að finna e-r leið til að sannfæra mig um að það væri ekki gott
mamma: "en sko, Brynjar er ekki með svona fullorðinsbleyju"
4-3
Snæbjörn: "nei, Brynjar er heldur ekki fullorðinn"
4-4
en eftir nokkrar sannfærandi staðreyndir um eðli dömubinda (þar sem bara fullorðnar konur nota bara svona og engir krakkar.....ákvað ég þó að pissa bara frekar í klósettið og mamma fékk að taka dömubindið aftur úr buxunum mínum
5-4 var loka niðurstaðan...mamma vann þessa viðureign....
leikskólakonurnar segja mömmu iðulega skondnar sögur af mér í leikskólanum, t.d. bulla ég víst ægilega mikið þ.a. hvorki svíarnir né íslendingarnir skilja mig....minns vill bara tala útlensku !!
svo um daginn átti ég að borða e-ð sem mig langaði ekki í...ég sit sko hjá henni Piu leikskólakonu í matnum....en sko..maður kann á þessar kvennsur...ég bara einfaldlega blikkaði hana í von um að mýkja hana aðeins upp svo ég þyrfti ekki að borða þennan óþverra...svei mér þá að það hafi ekki bara virkað :o)
ég var að læra nýtt um daginn....ég hafði nefninlega óvart sparkað í punginn á einum vini mínum og hann ópaði upp yfir sig að ég hafi sparkað í punginn....ég skildi þetta ekki alveg og hló mikið..."hahaha hann sagði að ég hafi sparkað í púkinn"....eftir þetta heitir þetta púki hjá mér...miklu skemmtilegra orð en pungur :o)
vitiði hvað ? sko..samkvæmt sjálfum mér.....á ég all nokkrar systur.....það er Hrefna, Mæja og Emilía sem tíðast eru nefndar......svo á ég alla vega einn bróðir...hann heitir Brynjar....það er sko gott að eiga góða að :)
thats all folks

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home