Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

föstudagur, nóvember 25, 2005

Krumpukrutt

nú er sko komin alltof langur tími síðan ég bloggaði síðast !! skamm mamma !! þetta gengur ekki !!

en annars er allt gott að frétta af mér...ég er rosalega kátur strákur..að vanda....mamma er SVO spennt á hverjum degi að hitta mig eftir leikskóla.....sjá hvað ég bardúsa þennan daginn og svonna...

í dag fór ég í heimsókn til vinkonu minnar, Hrefnu Lily. Það var rosalega gaman, við fengum að baka okkar eigin pizzu og svona...æðipæði! svo..fórum við inn í herbergi að leika okkur..rosalega gaman....svo stóð mamma Hrefnu upp og kíkti inn í herbergi til okkar...viti menn...ég var búin að pissa í dúkkubala og hún í dúkkukopp...við erum nú meira fólkið

við erum ægilega góðir vinir og erum víst alltaf að bardúsa úti að leika okkur...það er frábært að eiga svona góða vinkonu !!

hér koma nokkrar sögur af mér sem mamma hefur safnað

snæjbörn þurfti að pissa þegar við vorum að kaupa okkur mat í "kringlunni" hérna, fór með hann á klósettið sem var bara nokkra metra frá
meðan kláraði ég að borga...svo kemur minn bara labbandi fram á typpinu eins og ekkert sé sjálfsagðra ...thíhí..engin feimni hér!
sama dag fórum við í stórmarkaðinn til að versla í matinn...minn þurfti að kúka ákkúrat þegar ég var í miðri röðinni....við drifum okkur á klóið...skyldi hann svo eftir meðan ég ýttist áfram í röðinni
samt alltaf að hlaupa til svo að sama gerðist ekki aftur...
en svo heyrðist bara bergmála yfir allt "ég er búin mamma!" ... það var þó betra

mamma: "hver gaf þér þessa húfu?"
Snæbjörn: "Soffía frænka"
-- hólmfríður frænka reyndar, næsti bær við...er alltaf að hlusta á kardimommubæjinn

mamma: "ertu orðinn saddur af jógúrtinu??"
snæbjörn: "nei mamma, það er ekki matur í þessu, ég þarf að fá flatköku"
mamma: "jú, það er matur í jógúrtinu."+
Snæbjörn: "mamma, viltu segja bara þá það"

Snæbjörn segir lon og don "oj" :) hérna í svíþjóð segir fólk það þegar það gerist e-ð sem það bíst ekki við eða þannig kannski eins og úps eða e-ð þannig..fyndið að heyra hann pikka svona upp .)


Snæbjörn: "mamma, viltu kaupa litla barn í magann þinn? þá verð ég stóri bróðir :)"

mamma: "hvað viltu fá í jólagjöf, Snæbjörn?"
Snæbjörn: "fíl, með ranann niður og laufblöð sem fílar borða"
og heldur svo áfram
"playmo fíl og hest og gírafa og ..."

"mamma má ég horfa á samlokukallinn áður en við förum að sofa :)"
(leikur sem ég hef SVO gaman af)

núna þegar Snæbjörn fer í búð og sér e-ð sem hann langar í ... þá er hann farin að segja "má ég fá svona í jólagjöf" frekar en að spyrja hvort mamma vilji kaupa þetta núna...því alltaf þegar mamma spurði þá var alltaf bara "kannski í jólagjöf"....bara spara tíma sko..


that all folks....

e.s. bara 3 vikur í Íslandsferð

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home