Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

föstudagur, október 21, 2005

við erum að koma í dag!

HÆ kæru vinir....

já nú er loksins komið að því að við mamma komum í heimsókn....mikið erum við búin að hlakka til....

mamma er búin að pakka fyrir okkur og svo þurfti mamma að fara í morgun að þvo þvott svo að við ættum ekki bara fullt af skítugum fötum þegar við kæmum heim...en á meðan var ég heima og hlustaði á mikka ref..sem er alveg uppáhaldið mitt þessa dagana....en ég varð greinilega e-ð svangur á meðan mamma var í burtu því þegar mamma kíkti inn í herbergið mitt var ég búin að bjarga mér sjálfur um ceriós og jógúrt ... og fann nestisboxið mitt og sleif til að borða þetta upp úr...mamma ætlar að setja myndir svo þið sjáið hvað ég er úrræða góður...maður verður að redda sér

sjáumst fljótlega,
kveðja Snæbjörn















0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home