Krumpukr?tt
hæ hæ
ég er mættur á ný á netið að blogga...það er allt fínt að frétta hjá mér...ég er reyndar farin að lúlla þannig það er nú bara mútta að blogga fyrir mína hönd....
Það var nú eiginlega bara rólegheita dagur í dag hjá mér...var svona meir eða minna bara heima að horfa á teiknimyndir og svona...meðan mamma var að læra..það er víst voða mikið að gera hjá múttu þessa stundina ákkúrat...en svo fórum við loksins út að moka..ég fékk nefninlega stóra skóflu og fötu í verðlaun hjá mömmu fyrir að vera svona duglegur að fara að lúlla í mínu rúmmi....við gerðum fullt fullt af flottum kökum og holum og hólum...mjög gaman...fór að hjóla smá og svo fórum við í rólurnar og mamma ýtti mér..það var rosalega gaman því rólurnar hringsnerust með mig og ég skildi nú ekkert hvað þetta var skrýtin róla..en mér fannst alveg æði !!
við fórum í krikjuskóla hérna í gær..sem var mjög fínt..það eru sko bara íslensk börn þar og við erum að syngja og svona saman..mjög gaman...meðan fékk mamma sér kaffi og talaði við hinu íslensku foreldrana...
við mamma eru annars á leiðinni heim eftir tæpar 3 vikur og ætlum að stoppa í 10 daga...við erum ægilega spennt....söknum nú Íslands svoldið mikið og það verður æði pæði að koma heim..ég er strax farin að tala um það að ég ætli sko að fara í sund með henni Þórey ömmu minni og svona...
Gullmolar
Snæbjörn: "Mamma...eru hundar ekki hundar?"
Snæbjörn: "Mamma, er afinn okkar kannski feitur?"
Kom inn í herbergi hennar mömmu allur skítugur í framan
Mamma: "hvað varstu eiginlega að borða Snæbjörn"
Snæbjörn (skælbrosandi): "ís.....ég elska þig mamma :)"
(hérna er ískápurinn okkar þannig að frystihólfið er niðri .. þannig ég kemst ekki í ískápinn nema ég noti stól)
Mamma: "ef þú verður rosa duglegur að borða matinn þinn þá verður þú stór og..." (og var að fara að segja sterkur)
Snæbjörn: "feitur eins og afi"
Búinn að sulla kakómaltinu sínu út um allt borð
Mamma: "ertu svoldill sóði, Snæbjörn?"
Snæbjörn: "nei, ég er bara kjáni"

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home