komin aftur til Svíþjóðar
Jæja kæru vinir,
þá er ég mættur í Svíþjóðina mína aftur...mikið ROSALEGA var gaman á Íslandi...ég var svo kátur að ég vaknaði syngjandi og brosandi og kyssandi alla á hverjum morgni...reyndar er ég ALLTAF rosalega kátur strákur..sérstaklega á morgnana....
Það var sko margt bardúsað meðan ég var heima....fór til pabba míns það var ROSA gaman....svo hitti ég ömmu og afa Hryggjarseli, Birnu ömmu og krakkana, Heiðu og börnin hennar, Bjarney og börnin hennar, Möggu,Sævar, Brynjar og Kol, langömmu Báru, Hólmfríði frænku, Auði frænku og börnin hennar og fullt fullt fleirri skemmtilegu fólki...það var rosalega gaman að hitta ykkur öll!!!
gullmolar
hann afi minn er ALLTAF að stríða mér, vill taka af mér ísinn og fá hann lánaðann og svona og bítur þá
oftar en ekki í ísinn...ég er nú ekkert alltaf sáttu við þetta....um daginn fékk ég ís hjá ömmu og þá sneri ég mér að afa og sagði:
"þú færð ekki, feitabollu, skítalabbinn þinn"
mamma skammaði mig en átti erfitt með sig þó..
í flugvélinni á leiðinni heim í svíþjóðina,
var að ræða um hvert stóra ferðataskan hennar mömmu fór af því ég var með litlu andrésandarflugfreyjutöskuna mína enn þá
"sko, þegar kaskan mín var stór, þá fór hún á hlaupabrettið í flugvellinum"
Mamma: "Snæbjörn, eigum við að fara að heimsækja Heiðu?"
Snæbjörn: "Heiðu með börnin sín?"
ægilega formlegur :o)
Mamma: "hann guð sko, hann er að passa okkur, fylgist með okkur af himnum"
Snæbjörn: "já og líka Óskar og Brynjar og mamma Brynjars og pabbi Brynjars, þau passa okkur líka"
Snæbjörn: "ég get farið að renna mér í snjónum í mínum skóla"
Mamma: "í svíþjóðarleikskólanum ? er snjór í Svíþjóð núna?"
Snæbjörn"ummm...hugsi hugs...nei það er ekki snjór þar"
svoldið ljótt en læt samt fylgja
Amma: "þú ferð svo að heimsækja langömmu"
Snæbjörn: "langömmu ? er hún ekki dáin?"
langa amma var svo ekki heima
Mamma: "æji, langamma er ekki heima"
Snæbjörn: "nei, er hún ekki dáin?"
thats all folks

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home