hæ




Hæ allir
það er allt fínt að frétta hjá mér...ég er að borða...franskar og kjúklinganaggar í matinn...rosalega gott..nammi namm
ég fór snemma í leikskólann í morgun, mamma sótti mig svo klukkan 16 og við fórum út að leika á leikvöll sem er hérna rétt fyrir aftan húsið okkar..rosalega flott...
núna eru bara 3 dagar þangað til að ég kem í heimsókn til Íslands..jibbý...
leikskólakonan sagði mömmu að ég hefði verið að tala ægilega mikið um pabba í gær...hún skildi nú ekki mikið nema að pabbi minn héti Valgeir....
gullmolar
Snæbjörn: "Hæ amma...ég er í baði með nasalinginn" (nashyrninginn)
Snæbjörn (við mömmu):"elskan mín," kyssir ennið á múttu "reyndu að fíla þig".
Snæbjörn að spila á saxafón "mamma..syngdu!"
Snæbjörn á mcDonalds: "það eru allir sænskur hérna inni."
Snæbjörn í baði: "mamma!! mamma!! komdu...ææææjjj....krókódílinni er að bíta í typpið mitt"
that's all for now folks

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home