Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

fimmtudagur, september 22, 2005

Krumpukr?

hér kemur blogg sem fór á vitlausa síðu..fór á síðuna hennar mömmu:

Hæ allir..ég er komin í svíþjóðina mína !! vitið það ? það er rosalega gott að vera búin að hitta mömmu mína aftur..ég er nefninlega búin að vera hjá ömmu og afa og pabba mínum meðan mamma flutti út til Svíþjóðar...en nú er ég loksins komin !!!

Ég byrjaði í "svíþjóðar leikskólanum" mínum í gær..það var fínt..ég er nú samt svoldið feimin við alla þessa krakka og allar þessar konur sem tala og tala við mig og ég skil ekki ORÐ !! en það kemur fljótt...mamma er búin að sitja með mér og ég fékk að sjá alveg rosalega fín og flott dýr sem ég er svo hrifinn af og ég hef ekki hætt að tala um þau ... þannig mamma vonast til að ég verði fljótur að aðlagast nýja skólanum og nýju umhverfi og verði bara kátur og sætur strákur

en ég bið að heilsa í bili..mamma er að læra og ég er að leika mér hérna með henni...ég bið að heilsa ykkur öllum !! sakna ykkar rosalega mikið og vildi helst að ég gæti verið með ykkur hérna hjá mér...en svo sjáumst við alla vega hress og kát um jólin

knús og kossar Snæbjörng Valur

e.s. já...fólkið í leikskólanum kalla mig alltaf "Snjóbjörn" !! mamma er búin að reyna að leiðrétta þau..en þau fara alltaf aftur í það að kalla mig Snjóbjörn...ohh jæja..maður lætur sig nú hafa það :)

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home