Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

sunnudagur, september 25, 2005

Góðan dag


















hæ öll saman

það er allt fínt að frétta af mér..ég er svaka duglegur og góður strákur í Svíþjóðinni minni...ég er núna frammi að horfa á bangsímon og fríllinn....það er alveg uppáhaldið þessa dagana....ég vil alltaf vera Tumi tígur....















herbergið mitt
langaði að sýna ykkur Svíþjóðar herbergið mitt.....það eru bangsímon gardínur....svo límdi mamma bangsímon límiða og svolleiðs á vegginn og á hurðina, klippti svo út nafnið mitt og límdi á hurðina og setti mynd af mér á hurðina líka...og svo í gær keyptum við svona fríla-bangsímon plaggat á vegginn minn....þannig það fer ekkert á milli mála hver á þetta herbergi...enda er ég ægilega ánægður með herbergið mitt !!

svefntími
ég er búin að vera svo duglegur að fara að sofa sjálfur í herberginu mínu að mamma bara trúir því ekki...ég var nú svoldið að gráta fyrst og sagði að ég vildi ekki fara að sofa og svona...kom fram og vildi ekki leggjast í rúmið..en svo talaði mamma við mig og sagði við mig að af því að ég er svo duglegur og stór og farin að geta hjólað sjálfur og allt það að ég gæti nú sko alveg sofið í herberginu mínu...og þá bara gerði ég það !!!

.....mamma sko les eina bók fyrir mig og kyssir mig svo góða nótt...ég er með lampa sem mamma gaf mér...sem ég er ægilega ánægður með...kveiki og slekk á honum til víxl...svo skoða ég bara bækurnar mínar þangað til ég sofna.....rosalega duglegur !!

Góðan dag
ég er alltaf svaka kátur á morgnana...vaknaði í morgun og fór að syngja "jibbý jey og jibby jei...það er komin 17 júní" ... ægilega ánægður með lífið....get reyndar stundum verið svoldið lítill í mér þegar ég er orðinn þreyttur....en annars gegnur allt bara súper vel hérna....

bið að heilsa í bili..

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home