Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

fimmtudagur, maí 19, 2005

Krumpukr?tt

hæ hæ hæ...
núna er ég mættur í leikskólann minn....var nú svoldið stúrinn í morgunn og ætlaði varla að geta vaknað....svo sá ég gröfu út um gluggann heima hjá mér...mikið var nú gaman að fylgjast með henni ....

ég fór í húsdýragarðinn með Mæju vinkonu minni um daginn....og vitiði hvað ?? ég fékk að moka með svona alvöru gröfu...reyndar svona dóta grafa...en samt sko..það voru svona 3 stangir sem ég gat fiktað í og látið skófluna lyftast upp og niður og ég mokaði sko RISA holu !!! svo fór ég líka í rafmagnsbílana sem ég get fengið að keyra og stýra sjálfur...mamma sá nú mikla framför síðan í fyrra ( sjá myndband) því í fyrra þá bara klessti ég alltaf á og mamma þurfti alltaf að vera að hjálpa mér....en sko ekki núna !!!

það er aftur komið að pabba helgi hjá mér...það er lokað í leikskólanum mínum á morgun og þá verður amma með mig þangað til að pabbi getur sótt mig....jibbý jei .. mikið hlakka ég til..

en sko..smá leiðrétting: pabbi á víst heima í Keflavík núna...ekki Garðinum lengur....

hmmmm..hvað get ég sagt ykkur fleirra skemmtilegt ??

gullmolar
um daginn keypti mamma sogrör í IKEA ... rosa flott blá og græn...og ég var að fara í mat til ömmu og vildi endilega hafa með mér nokkur rör. á leiðinni í bílnum faðmaði ég rörin að mér og sagði ég elska rörin...yyyyndislegu rör.

svo var ég að gista hjá ömmu og afa um daginn....ég geri það stundum því við erum svo góðir vinir.....mamma sat í sófanum og var að horfa á sjónvarpið svona aðeins áður en að ég sofnaði....og hún sagði við mig "Snæbjörn, sjáðu það er komin nótt, þú verður að fara að sofa núna."....ég fór þá og kveikti ljósið í stiganum og sagði yyyyndislegi dagur og breiddi út faðminn á móti stiganum.....núna þarf ég ekki að fara að sofa því ég kveikti á deginum

svo fór ég loksins upp í rúm til ömmu og afa til að sofa. Þegar ég var lagstur sagði ég við afa viltu segja mér sögu? og afi sagði mér þá að segja sér sögu. Ég byrjaði þá Einu sinni var hestur.....hann var að bíta gras og viti menn ég og afi steinsofnuðum yfir sögunni !!!

yfir og út, knús og kossar, ykkar Snæbjörn Valur

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home