Krumpukr?tt
hæ kæru vinir...
jæja...nú er bara kominn maí og ég svaka kátur og hress náttl. með það...því það þýðir að það styttist í sumarið....og þá verð ég sko ALLTAF úti að leika og svona..mikið hlakka ég til :o)
af mér er annars allt gott að frétta....ég var hjá pabba mínum um helgina...rosa gaman að vanda....pabbi minn býr í Garðinum með kærustu sinni Sigrúnu og dóttir hennar Emilíu. Ég skemmti mér alltaf konunglega hjá þeim...fékk t.d. um helgina að gefa lömbunum að drekka.....úr pela...mikið var það gaman :o)
Mamma mín....hún sótti mig á sunnudaginn til ömmu Birnu og fór með mig heim. Við búum í Grafarholti .... ásamt kærasta mömmu honum Óskari. Við erum öll rosa góðir vinir og það er rosa oft kátt á hjalla :) t.d. í morgun þegar ég vaknaði..þá var nú skrýtið sko..ég hafði vaknað um nóttina og skriðið upp í hjá múttu....en þegar ég vaknaði í morgun...þá var mamma og Óskar bæði í rúminu mínu !! er það ekki skrýtið ?? en þá hafði Óskar lúllað þar því ég hreyfi mig svo mikið og mamma skriðið upp í um morguninn....fyndið ... thíhí...
gullmolarnir mínir
um daginn fór mamma með mig til læknis..á leiðinni út heima sagði mamma mér að við værum að fara til læknisins...."ohh...hvar er mér illt??" bara svona til að hafa það á hreinu....
svo þegar ég var kominn til læknisins....þá sat ég að leika mér í dótinu...það var fullt af fólki á biðstofunni...þá heyrist allt í einu hátt og skært í mér "Getum við lagað það ? ég held nú það !! bubbi byggir...trallalalalala"....allir í biðstofunni fóru að hlæja :o)
"nóttin er að koma,mamma....hún dettur á hausinn á okkur"
...meira síðar..yfir og út :-*

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home