Krumpukr?
hæ hæ
af mér er enn og aftur allt gott að frétta....er svakalega kátur og hress strákur....mamma er alltaf svo himinlifandi með mig....ég er að reyna að læra á koppinn og fer svona öðru hvoru á hann..stundum vill ég ekkert með hann hafa ... en stundum vill ég fá að setjast á hann þó svo að ekkert komi....en mamma er alltaf tilbúin að skella mér á hann þegar ég bið um..
ég fór á Akureyri um helgina...það var nú ekki alveg nógu mikill snjór !! ekki eins og það var í fyrra alla vega...en mamma þarf að fara að setja inn e-r myndir....og þá vonandi e-r frá því núna um helgina...Tommi frændi tók fullt af myndum af mér....hann á svo rosalega flott myndavél...mamma dauð öfundar hann !! en ég vill líka alltaf fá að skoða þessa flottu græju !!
Amma og afi fóru með mig á fimmtudeginum og svo kom mamma á föstudeginum með "fluvvél"...en ég var smá áhyggjufullur fyrst því ég kannaðist ekkert við þetta skrýtna hús...spurði ömmu hvort við ætluðum að eiga heima hérna núna....svo var ég sáttur þegar amma sagði að mamma væri að koma bráðum....en ég var líka sáttur þegar ég fann það út með sjálfum mér að þetta væri rúmið hans Tomma og hennar Heiðu sem við gistum í .... var svaka ánægður þegar þau komu að sýna þeim rúmið "þeirra"...þau vildu nú samt ekki alveg bekinna það...
ég sá hesta á Akureyri .. eða þarna rétt fyrir ofan bæjinn hjá golfvellinum og ég vildi auðvitað fá að kíkja á þá...ég var svaka kurteis sagði alltaf "halló" við þá þegar þeir komu að mér...þeir voru bara dónalegir því þeir heilsuðu mér ekkert til baka....en "greyið hestunum" var bara kalt og vildu brauð sem ég átti ekki handa þeim...
svo fórum við út að borða...ég fékk pizzusneið í forrétt og svo nagga og franskar í aðallrétt..rosalega gott...svo fór amma með mig á klósettið...og ég fann leikherbergi..rosalega flott...svo fór mamma með mig aftur á klósettið og mér fannst nú alveg komið nóg af þessu.....gekk að næsta borði og sagði bless...ég meina..maður verður að vera kurteis !! svo þegar átti eina ferðina enn að skella mér við þetta sama borð þá sagði ég bara hingað og ekki lengra og hljóp inn í leikherbergið...rosa gaman..
svo meðan mamma og Óskar og amma og Tommi og Heiða fóru á Óliver Twist í leikhúsinu var ég heima með afa...sem var bara reglulega fínt !! ég var mjög sáttur við það bara....við erum svo miklir félagar
í gær á leiðinni heim frá Akureyri vorum við mamma að skymlas og takið eftir þetta er ekki stafsetningarvilla hjá mömmu..ég segi alltaf að ég vilji skymlast...og svo segi ég líka að ég vilji pespí....ég er svo mikið krútt...eða mömmu finnst það....hún fær sko aldrei nóg af mér !!
í morgun svo þegar ég fór á leikskólann þá sagði ég þegar ég sá hann "leikskólinn minn"....mamma ætlaði nú að gera þetta smá spennandi svo ég færi nú ekki að gráta og klappaði og sagði "jibbý...leikskólinn...veiiiiii!!"....ég var alveg graf alvarlegur aftur í og sagði við mömmu "ekki klappa!"
en jæja..bið að heilsa í bili...mamma fer vonandi að setja inn myndir fljótlega..svo þið sjáið hvað ég er búin að stækka...knús í krús
Svalur

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home