Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

mánudagur, janúar 24, 2005

Krumpukr?

ég er með hlaupabólu :o(.....sko..reyndar er það ekki svo slæmt..ég fæ hana svo vægt að hún angrar mig ekki neitt..ég er bara svaka kátur og hress....og hamast heima með mömmu..það er frábært sko..er búin að hafa mömmu heima hjá mér núna í 4 daga...en mamma ætlar kannski að fara með í leikskólann á morgun..sjáum til..

en alla vega..það er orðið svakalega langt síðan ég talaði við ykkur síðast.....

ég er alla vega búin að pissa í koppinn...einn morgunin kom á hlaupandi bleyju laus ( mamma tók hana af mér sko ) á klósett þegar mamma var að pissa .... ég vildi fá að pissa í koppinn :o)....þannig ég stóð við koppinn....og heimtaði að fá að standa...stóð og tosaði í vininn með annarri og nuddaði augun með hinni og geispaði...vá hvað mömmu fannst ég virka fullorðinn...en svo var ég svo þreyttur að ég ákvað að setjast fyrir framan koppinn og reyna að teygja á honum til að pissa í koppinn...en þá sett mamma mig bara á koppinn og ég pissaði !!...ég var svo duglegur að mamma gaf mér verðlaun seinna um daginn...

ég bjó mér til hús ! ég notaði skáphurðar tvær inn í eldhúsinu og dró þær saman....fór þar í sturtu og svona.......bauð fólki í heimsókn......múttu fannst þetta svaka skondið sko....ég fór meira segja á klósettið þar...mömmu til miður svo mikillar ánægju því fljótlega kom ég hlaupandi og bað um að fá skrúbbun....

það er fullt fleirra skemmtilegt að gerast hjá mér....fullt af svona litlum skondnum setningum sem mér dettur í hug og sem er svo fyndið að heyra frá svona litlum kalli....ég er voða forvitin með allt og er alltaf að spyrja mömmu "hvadda gera?" eða "hvað er'etta?"....rosa rosa gaman....ferlegt samt hvað mamma er fljót að gleyma öllk því sem ég segi...en ég á eftir að segja svo mikið fyndið....ég er ekkert hættu sko....

en alla vega...bið að heilsa ykkur í bili..það er verið að elta mig um íbúðina til að koma mér í svefn..þannig ég heyri í ykkur síðar...yfir og út

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home