Krumpukr?
Hæ heimur..
hvað segist gott í dag ? það segist bara fínt hjá mér :) ég er náttl. svaka kátur og hress. Ég er heima að lúlla núna :o)
vondi kallinn að bíta Harry
og mamma og Óskar eru alltaf að horfa á Harry Potter.....Harry Potter er svaka skemmtilegur..vissuð þið það ? ég alla vega er svaka spenntur yfir honum....rosa gaman :) sko..um daginn..þá var vondi kallinn að bíta Harry !! pælið í því mar....það var sko stór snákur sem var að bíta hann...og svo allt í einu upp úr þurru í bílnum um daginn fór ég að segja mömmu frá þessu "vondi kallinn bíta Harry"...mamma var ekki alveg að fatta fyrst hvað ég var að meina....en fattaði það svo að lokum......
já já
ég er orðinn svaka gæji..og farinn að herma eftir því hvernig mamma og aðrir fullorðnir tala í kringum mig....t.d. um daginn þá var ég að tala við mömmu í símann þá kom alveg "allt fínt?" "já ég segi allt fínt" "hvað ertu að gera?" og alls kyns svolleiðis ... áður fyrr var það bara rétt að maður fékk hæ og svo bæ í símann....mömmu finnst voða gaman að tala við mig..ég er alltaf svo glaður í símann..eða svona oftast...en svo sko..þá er t.d. ég líka farinn að herma annað.....í gær vildi ég bara borða pastað af disknum hans Óskars
Óskar: "ætlaru bara að borða af disknum mínum? Pastað mitt?"
ég: "já já!"
og þar við sat...ég borðaði bara pastað hans Óskars..hehe
og núna er þetta tískuyrði á bænum...það er já já og jú jú í öðru hverju svari....mömmu til ómældrar gleði....
vitiði hvað ? ég kann að ríma...mamma sko var að segja e-ð við mig sem rímaði..en fattaði það ekki...og því miður man mamma það ekki...en ég hoppaði beint inn og bætti við einni línunni enn í ljóðið sem rímaði ákkúrat við.....mjög töff sko...
spilaði og söng
ég fékk gítar í jólagjöf frá honum pabba mínum...eiginlega ekki í jólagjöf því hann var búinn að gefa mér hann svoldið áður....en alla vega þá er heilmikil orka sem fer í það að spila á gítarinn og syngja...mamma er alltaf að reyna að taka það upp til að leyfa ykkur að heyra...en það er ekki alveg að gera sig sko..því ég þagna alltaf þegar mamma kemur með upptökutækið sitt...alveg ferlegt mar !! við finnum út úr því :)
jólapakki
ohh..ég var svo svekktur áðan...þegar ég kom út frá mömmu þá kom kona labbandi sem var að fara í kjallarann með stóran poka í fanginu..ég var svo ánægður og kallaði upp yfir mig jólapakki !!!! en það var víst ekki jólapakki..alla vega ekki neitt sem ég fékk að eiga :(
en alla vega ég fékk rosa mikið fallegt í jólagjöf...rosa gaman að opna alla pakkana...og meira að segja fékk ég pakka í sendingu áðan..frá Ítalíu !! ég er ekki búin að opna það því ég er sofandi en ég fæ að opna pakka þegar ég vakna í fyrramálið
alla vega talk to you later...knús og kossar Svalur

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home