Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

föstudagur, desember 03, 2004

Krumpukrúttið

hæ hæ :)
hvað segiði gott ? ég segi rosa gott sko....ég er í leikskólanum mínum núna. Mamma var í viðtali í leikskólanum og leikskóla konan var rosa ánægð með mig og sagði að ég væri yndislegur strákur, mamma vissi það líka alveg.


glasið
Um daginn var mamma að tala í símann ( ekki í fyrsta skipti sko ) og ég var að bardúsa inn í stofu..horfa á sjónvarpið og borða e-ð smá snarl. Allt í einu heyri ég svaka hávaða og skell við hliðina á mér....rosalega brá mér...en þá hafði ég óvart rekið mig í glasið á borðinu og það skall í gólfið og brotnaði. Ég var pínu hræddur og mamma kom hlaupandi til að sjá hvað hafði gerst og ég hljóp til hennar og mamma sagðí við mig:"varstu að brjóta glasið?
"já" sagði ég fýldur.
Mamma: "varstu að brjóta fína glasið hennar mömmu?",
ég enn þá fýldur: "jáhh",
mamma:"og hvað segir maður þá?"
ég: "takk!" og hleyp sáttur í burtu.
svo einfalt er það :o)

stelpa/strákur
mömmu fannst nú kominn tími til að fræða mig um stráka og stelpur. Mamma útsýrði fyrir mér að ég væri strákur en mamma væri stelpa....mamma var rosa stolt af mér að ég var fljótur að ná þessu...ég endurtók eftir mömmu: "Mamma er stelpa og Snæbjörn er strákur". Þetta gat nú ekki verið flókið.
Nokkrum dögum síðar var mamma að prófa mig í bílnum hversu vel ég mundi nú eftir því sem hún hafði verið að kenna mér og byrjaði setninguna "mamma er stelpa og Snæbjörn er?" og beið í ofvæni eftir því hvort ég myndi muna þetta enn þá.
ég var ekki lengi að átta mig á þessu og svaraði um hæl: "bestur í heiminum".

jæja..nóg í bili...annars ætlar mamma að reyna að vera dugleg að setja inn sögur af mér svo þær gleymist nú ekki !! ég bið að heilsa ykkur og óska ykkur góðrar helgar !!

knús og kossar Snæbjörn Valur

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home