Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

miðvikudagur, desember 15, 2004

Krumpukrútt

Hæ hæ....hvað segiði þá gott ?? ég segi allt SÚPER..eins og svona oftast...hehe....alltaf svo svakalega kátur....

syngdu með!!!
ég er alltaf að syngja...ohh..hún mamma þarf að fara að taka upp fleirri lög til að leyfa ykkur að heyra...en alla vega..þá erum við oft að syngja í bílnum....mömmu finnst stundum voða gott að koma mér bara af stað í söngnum og hlusta svo bara....finnst skemmtilegast......en þá segi ég bara: "syngdu með!!!" og þá syngjum við hástöfum...en sko...ég er rosa duglegur en stundum þá veit ég ekkert hvað ég er að syngja um þannig að þá getur dottið út eitt og eitt orð....eða breyti orðunum...það er bara gaman að því !!

vondi kallinn/góði kallinn
Jæja eins og þið munið þá mamma er búin að vera að kenna mér með stelpu og stráka og það allt.....og ég hef mikið verið að spá í þetta síðan þá......
svo eitt kvöldið...þegar mamma og Óskar voru að keyra heim með mig heyrist allt í einu upp úr þurru hjá mér: "vondi kallinn er með typpi!".....mamma og Óskar litu glottandi á hvort annað og reyndu að bæla niður hláturinn.....
Óskar:"en góði kallinn er hann líka með typpi ?"
ég hneysklaður: "neihhh!!!"
ég er sko fljótur að átta mig á þessu!!

ég er svoddan jólasveinn
vitiði hvað ? Ég elska að sjá jólasveinana í búðunum og jólaljósin....á jólasveina húfu sem ég er SVO ánægður með....en ég er rosa hræddur við alvöru jólasveina...mamma spurði mig um daginn hvort jólasveinninn hefði komið í leikskólann......ég stökk upp í rúm og horfði skelkaður í kringum mig...en reyndi nú að bera mig mannalega og sagði:"ekki hræddur við jólasvein!"
og núna þori ég helst ekki inn í herbergið mitt .... sko af því að mamma sagði mér að e-r jólasveinn ætlaði að koma og setja e-ð í skóinn minn...og skipaði mér að setja skóinn út í glugga..ég ætlaði nú ekki að týma því....ég skil þetta ekki alveg....en alla vega þá er ég fljótur að skríða upp í mömmu rúm á nóttunni núna undanfarið...það er öruggast þegar e-r rauðklæddir karlar eru að fara að fikta e-ð við skóinn minn í glugganum !!!

en tala við ykkur síðar...knús og kossar Svalur

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home