Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

sunnudagur, september 19, 2004

Helgin

HÆ hæ allir....

hvað segiði ?? þá er helgin búin og ég búin að hafa það rosalega gott !! fór til pabba sko á laugardaginn...og ég fór með ömmu í dag í réttir og í afmæli...mamma var nátt. ekki með þannig hún getur ekki skrifað mikið af prakkarastrikum núna .)


hey..ég hitti Mæju vinkonu mína á laugardaginn...mikið fannst mér það gaman !! við fórum í búðir með mömmum okkar ... og við hlupum út um allt og vorum svaka kát.....rosa gaman...svo voru svona flottir bílar út um allt sem við lékum okkur í !! rosa fjör sko !! ekki vantaði fjörið

en svo í dag/kvöld fór ég í mat til Helenu,Heiðu,Örvars og Róberts litla....ummm..það var rosa gott...svo fór ég að horfa á Stubbana..mikið er það gaman !! við fengum ís ég og Helena...sko Helena átti afmæli í gær...var 6 ára :) TIL HAMINGJU HELENA FRÆNKA !! svo fórum við meira að segja að dansa...ohhh..það er alltaf svo gaman að heimsækja Helenu frænku..hún er alveg uppáhaldsfrænka mín !! mér finnst svo gaman að leika við hana !!

þannig þetta er búin að vera rosa skemmtileg helgi !! búin að hitta fullt fullt af skemmtilegu fólki !! hefur sko ekki vantað á það !! og bara rosa kátur og hress...eyrun öll að koma til sko....og vonandi bara er ég að verða laus við þessa eyrnabólgu alltaf..það er svo vont !!!

en ég bið að heilsa ykkur...er strax orðinn spenntur að heyra frá ykkur næst ;) knús og kossar Svalur

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home