Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

miðvikudagur, september 15, 2004

hæ hæ allir !!

hvað segiði gott þá ?? ég segi nú allt ágætt svo sem..nema það að ég er með í eyrunum og get ekki sofið :S annars bara kátur og hress...

af mér er s.s. nýtt að ég er byrjaður í leikskóla..hann heitir Geislabaugur og það er rosa gaman þar !! hleyp og leik mér með krökkunum þegar ég kem í leikskólann..ekki leiðinlegt sko !! fæ að bardúsa ýmislegt með fóstrunum mínum.....

fór í sumarbústað síðustu helgi með ömmu og afa...það fannst mér gaman !! fékk að fara í pottinn og svona..rosa fjör sko.....mér leiðist sko ekki að vera með ömmu og afa...þau eru bestu skinn !! og bestu vinir mínir sko...alltaf svo svaka góð við mig og ég alltaf svo ánægður að hitta þau....

mamma er að fara í brúðkaup næstu helgi til frænku minnar og þá verð ég hjá pabba mínum á meðan.....það verður voða gaman...finnst voða gaman að vera með pabba..hann er líka besta skinn og besti vinur minn....ég fæ alltaf að horfa á skemmtilegar myndir í tölvunni hans..mér leiðist það sko ekki....mjög gaman.....

Stubbarnir eru uppáhaldið núna...og nátt alltaf Lína langsokkur mér finnst hún voða skemmtilegt....en Stubbarnir eru sko alveg að ná til mín núna...og ég hrópa upp yfir mig "stubbabrauð stubbabrauð" þegar þeir eru að fá sér að borða...ég er sko búin að skoða sömu spólu aftur og aftur og aftur....alltaf finnst mér jafn gaman að horfa á það !! heldur betur...

ohh...vona að ég sé að fara að ná að sofna..því mamma er alveg að deyja úr þreytu og getur varla haldið augunum opnum....allt í einu helltist þreytan yfir hana :S

en alla vega knús og kossar Krumpi

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home