Jæja jæja
Núna er ein helgina að renna á enda....Ég er búin að hafa það svakalega gott !! Ég fór með múttu og ömmu í kvennahlaupið á laugardaginn....það var voða gaman...eða alla vega gaman að sjá allar þessar bleik klæddu konur !! Eftir það fór ég að leika mér úti með Mæju vinkonu minni...það var rosalega gaman !! Svo endaði ég daginn á því að fá að gista hjá ömmu og afa því mamma og pabbi fóru seint seint í bíó.
Dagurinn í dag var líka ágætur ... fyrir utan smá óhapp !! ég gisti s.s hjá ömmu og afa og amma kom með mig heim klukkan 10 í morgun. Það var rosalega gaman að vera hjá ömmu og afa og ég vaknaði klukkan 7 í morgun ! Mamma fór svo með mig í sund og þar hittum við Mæju vinkonu og mömmu hennar Bjarney. Það var rosalega gaman í sundi...svo meiddi Mæja sig í fílarennibrautinni þannig að við fórum bara upp úr og við fengum ís eftir sundið. Ég var fyrstur til að klára ísinn minn og fór af stað að skoða umhverfið...svo hljóp ég af stað niður eina brekku...voða fjör...svo kom Mæja og mamma að sækja mig og þá ákvað ég að stinga þær aftur af...og hljóp voða hratt...en brekkan var svo brött að ég datt fram fyrir mig og skall með höfuðið í gangstéttina.....ég var með RISA kúlu !! ég fór inn í sundið aftur og fékk kælingu á kúluna....þetta var nú meira....
ég verð að setja inn myndir af mér...mamma var svo hrædd um að ég hefði fengið heilahristing og hringdi í ömmu og amma kom og kíkti á mig....sagði að það væri allt í lagi með mig og að ég mætti fara að sofa...því ég var orðinn svo svakalega þreyttur en mamma þorði ekki að leyfa mér að sofna.
en svo var ég bara svaka hress og kátur eftir svefninn...á meðan ég svaf fór mamma og keypti kubbakassa handa mér og ég var himinlifandi þegar ég sá að ég fékk kubba og fór strax að búa til kastala..eða e-ð.
en núna er ég farinn að sofa...eins og ávalt sef ég á dýnu á gólfinu..mamma ætlaði að fara að kaupa rúm handa mér í dag ... en það var ekki hægt út af risa kúlunni á enninu á mér...þannig að það verður að bíða betri tíma...en næstu helgi erum við að fara að halda upp á afmælið hennar ömmu og hans afa upp í Þórsmörk..þannig það verður vonandi gaman !!
ég heyri í ykkur síðar...sendi myndir um leið og mamma er búin að skella þeim inn í tölvuna....
hugs & kisses Svalur

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home