hæbb
Jæja...þá er bara officially komið sumar !! Búið að vera rosalega gott veður og ég er búin að vera rosa mikið úti hjá dagmömmunni. mér finnst það svo rosalega gaman !! þá fæ ég að moka og það er sko uppáhaldið mitt !!
ég er komin með inn í leikskóla..og byrja væntanlega í ágúst...þannig að ég næ að byrja áður en að ég verð 2-ja..en ég verð það 22. ágúst næst komandi....mikið verður það spennó..sko bæði að byrja í leikskóla og að verða 2-ja.
Amma og afi eru búin að gefa mér fyrirfram afmælisgjöf..gáfu mér rosalega flott hjól...mér finnst nefninlega líka rosa gaman að hjóla. Það er svo gaman að vera ég !! mér finnst svo margt skemmtilegt !! ég er líka oftast kátur...sérstaklega þó ef ég get fengið að dunda mér....hamast í garðinum með ömmu eða moka út á svölum hjá mömmu...eða út að leika með krökkunum hjá dagmömmunni !! rosa fjör !!!
Nú á amma mín bráðum afmæli..hún er að verða 50 ára !! vá....rosa er hún gömul !! en hún er í útlöndum þannig að ég get ekki hitt hana fyrr en hún kemur heim......"amma, afa flúva !"
það er nú loksins komin helgi !! mikið er ég fegin því þá fæ ég að vera heima allan daginn..þ.e. ef mamma er ekki að þvælast með mig..hún gerir það svoldið oft...en kannski/vonandi verðum við bara í rólegheitum þessa helgi....svo stefnum við á að fara í útilegu e-n tíma í sumar....alla vega förum við í Þórsmörk helgina 25.júní...þá er amma og afi að fara að ganga fimmvörðuháls og við ætlum með þeim og grilla og hafa það gott saman !! það verður alveg örugglega gaman.
það er ekki mikið annað að frétta sem ég man eftir núna...ég bið að heilsa ykkur í bili og óska ykkur góðrar helgar !! kveðja Svalur

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home