Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

fimmtudagur, júní 10, 2004

Amma mín á afmæli í dag...hún Þórey amma !! TIL HAMINGJU AMMA MÍN !! (reyndar átti hún afmæli í gær því klukkan er orðin meir en 12)

ég hringdi í morgun út til ömmu til að óska henni til hamingju með afmælið ! Mamma var búin að æfa mig í því að segja til hamingju...eða ég sagði eiginlega: "amingu". Amma skildi alla vega hvað ég sagði...og var nátt. ánægð að heyra frá mér....en hún amma kemur heim á morgun....

það var geðveikt gott veður í dag...ég var úti að leika..oh það er svo gaman. Þegar ég mætti til dagmömmunar í morgun voru krakkarnir allir komnir út og ég hljóp af stað til að leika með þeim. Einn strákurinn var með uppáhalds skófluna mína og ég var ekkert svaka ánægður með það !! Sko það er ein ákveðin skófla heima sem ég vil alltaf vera með..og svo er ein alveg eins hjá dagmömmunni nema bara græn....og ég vill bara vera með þessar skóflur.

Var ég ekki búin að segja ykkur hvað ég er hrifin af því að vera með skóflur ?? sko...ég á s.s. eina gula skóflu sem ég vill hafa alltaf hjá mér. Ég sef með hana ... fer með hana með mér allt sem ég fer. Það er ekki nokkur séns fyrir mömmu að fá mig til að láta frá mér skófluna. Hún er besti vinur minn.

Mamma var að vinna allan daginn langt fram á kvöld þannig að ég sá hana ekki mikið í dag...mömmu finnst það alltaf svo leiðinlegt !! en við verðum saman um helgina !! það má nú ekki klikka ! Annars er mamma að fara að útskrifast úr skólanum sínum á laugardaginn. Loksins er hún formlega orðin laus við skólann sinn. En það tekur alltaf annað við og núna er vinnan að stela henni frá mér !! En pabbi var hjá mér og það var gaman !

ég tala við ykkur meira síðar (kisses)(knús og kossar) Svalur

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home