hæbb !!
hvað segið þið gott ?? ég segi bara allt fínt....það er að vísu orðið svoldið langt síðan ég skrifaði ykkur síðast....eiginlega meir en ár...mamma greinilega e-ð léleg búin að vera undan farið !! en alla vega..ég er mættur á ný....svaka kátur og hress....
ég er orðinn rosa stór og duglegur strákur. ég er farinn að segja fullt af skemmtilegum orðum...og er nátt. bara farinn að tala...en er kannski ekki alveg flug talandi en svona því sem næst...ég mynda alveg setningar með 2-4 orðum eða svo....en er enn svoldið þvogglu mæltur og mamma skilur mig stundum ekki....oh það er svo pirrandi
ég er eiginlega á ha-aldrinum...ég segi alltaf ha...eða "hva e tetta?".....ég vill mikið heyra orð og setningar ... og finnst voða gaman að læra e-ð nýtt orð !! lærði tölva um daginn "tövva!" og svo hús = "huss"....þannig það er mikið að gerast....
en svona lít ég út nú orðið:
en jæja...nú ætlar mamma að fara að sofa...ég er nátt. löngu sofnaður..ég heyri í ykkur seinna....knús og kossar Svalur

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home