Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

sunnudagur, maí 30, 2004

Hæ og hó

ég er aftur mættur á netið að segja ykkur sögur af mér...

ég er enn þá veikur...og nú er mamma og pabbi líka búin að smitast þannig að við liggjum öll familían upp í rúmi....ekkert sérstaklega gaman...en það er samt bara ágætt.....pabbi er einmitt að lúlla núna....en mamma er að leyfa mér að skoða myndir af mér á netinu og svona..mér finnst þessi með páskaungann skemmtilegust...

ég fékk að fara út áðan....út í "sandkassann" minn hérna úti á svölunum okkar...mamma klæddi mig í heavy vetrargalla og með svaka húfu....hún hafði áhyggjur að mér yrði kalt því ég er veikur...en sko..ég er svaka hress alltaf þó svo að ég sé svona hálf slappur....mamma og pabbi liggja alveg afvelta en ég er sko ekki að velta mér upp úr svona smá munum...smá hiti og smá illt í hálsi...maður verður nú samt að leika sér...

núna held ég að ég kveðji í bili...mamma ætlar að reyna að fara að svæfa mig.....knús og kossar Svalur

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home