Krumpukrútt

Lítill yndislegur patti

miðvikudagur, október 16, 2002

Ég er kominn með nafn !!! ég er ekki lengur Lilli eða krumpukrútt eða gormur...ég er Snæbjörn Valur Valgeirsson....er það ekki bara flott nafn...það er reyndar svoldið stórt enn sem komið er á svona lítin svein...en ég vex í það...enda er ég bara svakalega duglegur að stækka...mamma segir að ég vaxi bara með hverri mínútunni ... og henni finnst ég svakalega stór...svo er ég svo duglegur að brosa og hlæja...ég er svaka kátur...og það er líka bara gott !! mamma segir það alla veganna !!
En s.s. allt í góðu bara hjá mér.....ég er bara að fá mér blund þessa stundina og er bara miklu betri...7,9,13...í mallanum...vonandi var það bara nóg að gefa mér nafn....hugs and kisses....Snæbjörn Valur

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home